Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 98

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 98
tók skattstjóri fram að stjómarformaður A hf. væri einnig stjómarformaður og fram- kvæmdastjóri B hf. Þá hafði B hf. engan á launaskrá er það seldi þjónustuna til A hf. Þá kom fram að B hf. hefði enga starfsemi haft frá árinu 1990 fyrr en félagið gerði verksamning við A hf. Umrædd viðskipti hafi verið eina starfsemi félagsins. Þá hafi engar greiðslur farið á milli nema til að mæta greiðslu virðisaukaskatts. Skattstjóri kemst svo að orði: „Af framansögðu má telja ljóst að engin raunvemleg viðskipti hafi átt sér stað milli [A hf.] og [B hf.] heldur má slá því föstu að eingöngu sé um sýndarviðskipti að ræða til þess að nýta yfirfæranlegt rekstrartap [B hf.] og lækka þar með hreinar tekjur [A hf.]“. I úrskurði yfirskattanefndar kemur fram að skattstjóri hafi ekki byggt breytingar sínar á 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981, þvert á móti hafí skattstjóri haldið því fram að viðskiptin hafi aldrei átt sér stað. Þá taldi yfirskatta- nefnd að ekki hefðu legið þau gögn fyrir hjá skattstjóra er nægðu til að álykta að um málamyndageming væri að ræða og unnt hafi verið að framkvæma hina kærðu breytingu á þeim grundvelli einum saman að viðskipti félaganna hefðu aldrei átt sér stað og kostnaður vegna þeirra teldist því ekki rekstarkostnaður í skilningi 1. tölul. 31. gr. laga nr. 75/1981. Síðan segir: „Hygðist skattstjóri vefengja hin umþrættu við- skipti með þessum hætti varð að styðja slíka vefengingu við ákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981, þar sem fram kemur að ef aðilar semja um skipti sín í fjármálum á hátt sem er verulega frábrugðinn því sem almennt gerist í slíkum viðskiptum skuli verðmæti, sem án slíkra samninga hefðu runnið til annars skattaðilans, en gera það ekki vegna samningsins, teljast honum til tekna. Að framangreindu virtu verður ekki hjá því komist að ómerkja hina kærðu breytingu skattstjóra". Úrskurður yflrskattanefndar nr. 809/1998 Málavextir voru þeir að 5. janúar 1996 seldi kærandi konu sinni eignarhluta sinn í atvinnuhúsnæði á 2.800.000 kr. og gjaldfærði tap vegna sölunnar 62.600 kr. Hinn 5. nóvember sama ár seldi eiginkonan þessa fasteign á 4.200.000 kr. og var söluhagn- aður 1.400.000 kr„ sem hún færði á móti ónýttu rekstrartapi vegna reksturs hennar á árunum 1994 og 1995. Tilkynnti skattstjóri með vísan til 95. gr. laga nr. 75/1981 að hann byggði ekki á þessum viðskiptum við álagningu 1997 á forsendum 58. gr. laga nr. 75/1981 um óvenjuleg viðskipti. Og tók fram að hér væri um að ræða mála- myndagerning til þess að komast hjá skattlagningu á söluhagnaði og notuð til þess rekstrartöp eiginkonu, sem hætt væri verslunarrekstri. Mál þetta fékk ekki efnis- úrlausn hjá yfirskattanefnd þar sem ekki var gætt réttrar málsmeðferðar, þar sem yfirskattanefnd taldi að skattstjóra hefði borið að gefa kærendum kost á að gera grein fyrir fasteignaviðskiptum sínum á árinu 1996 áður en hinar umdeildu breytingar voru framkvæmdar, „enda kallar ákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981 sérstaklega á vandaðan undirbúning, m.a. svo unnt sé að henda nákvæmar reiður á þargreindum verðmætum“. Voru breytingar skattstjóra því ómerktar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue: 3. Tölublað (01.10.1999)
https://timarit.is/issue/313959

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

3. Tölublað (01.10.1999)

Actions: