Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Síða 100

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Síða 100
jafnframt er litið til þess sem ætla má að almennt tíðkist í ráðningarkjörum að þessu leyti þykir ekki verða byggt á þessu atriði í málinu“. Þá segir í úrskurðinum: „Samkvæmt framansögðu og þegar litið er til notkunar hússins og starfsemi kæranda, þ.e. reksturs ferðaskrifstofu, verður ekki talið að nein sú breyting hafi orðið við eigendaskipti þau að húseigninni ... sem í málinu greinir, er leitt geti til þess að fasteign þessi teljist fyrnanleg eign í skilningi 32. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, og að kostnaður við rekstur eignarinnar teljist frádráttarbær rekstr- arkostnaður í skilningi 1. tölul. 31. gr. sömu laga. Telja verður að húseignin sé ein- göngu notuð í einkaþágu framkvæmdastjóra og aðaleiganda kæranda, sbr. í þessu sambandi ákvæði 1. málsl. a-liðar 11. gr. reglugerðar nr. 483/1994, um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Þá þykir einsýnt að til þeirra ráð- stafana með umrædda húseign, sem í málinu greinir, sem telja verður óvenjuleg skipti í fjármálum, hefði ekki komið nema framangreindum eigna- og stjómunar- tengslum milli kæranda og [A, framkvæmdastjóra] hefði verið til að dreifa. Verður því að taka undir það með skattstjóra að hér hafi staðið svo á að grunnregla sú, sem fram kemur í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981, ætti við, sbr. þau sjónarmið varðandi þessa reglu sem fram koma í dómi Hæstaréttar íslands [H 1997 385] og [H 1998 268] og úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 21. febrúar 1998 í málinu nr. Y-10/1997...“. Úrskurður skattstjóra var staðfestur. 7.3 Úrskurðir yfirskattanefndar þar sem byggt er á 2. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981 Úrskurður yfirskattanefndar nr. 864/199667 Kærð var endurákvörðun skattstjóra vegna framtala 1992 og 1994. Um var að ræða hækkun á tekjum kæranda frá tveimur vinnuveitendum. Þessar breytingar skattstjóra mátti rekja til að þess að fyrmefnda árið var um að ræða mismun á kaupverði bifreiðar, Toyota 4runner, 25.000 kr. og raunverulegu verði hennar sem mátti ætla að hafi verið 2.500.000 kr. Síðarnefnda árið var um að ræða hækkun launa vegna mismunar á kaupverði bifreiðar, Toyota Carina E, 5.000 kr. og raunverulegu verði hennar sem var 1.855.000 kr. skv. innsendri staðfestingu frá umboði bifreiðarinnar. Taldi skattstjóri að líta yrði á óeðlilega lágt kaupverð bifreiðanna sem keyptar hefðu verið af vinnuveitendum kæranda sem launauppbót sem skattskyld væri samkvæmt 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt. Þá tók skattstjóri fram að skattlagningin gæti einnig átt sér stoð í 2. mgr. 58. gr. sömu laga. í kæra til yfirskattanefndar gerði kærandi þá kröfu að ákvörðun skattstjóra yrði hnekkt á þeim grundvelli að það sé meginregla að viðskipti einstaklinga með lausafé sé skattfrjáls og einnig að um væri að ræða miskabætur sem væru skattfrjálsar skv. 2. tölul. 28. gr. laga laga nr. 75/1981, og væru bætur vegna riftunar á starfssamning- um sem greiddar hefðu verið út í einu lagi með þessum hætti. Yfirskattanefnd þóttu atvik benda til þess að um hafi verið að ræða þátt í launakjör- um kæranda og var þá m.a. litið til þess sem fram kom í kæruúrskurði skattstjóra, að fleiri forráðamenn vinnuveitanda kæranda, hafi notið hliðstæðra kjara varðandi bifreiðar. Með því að talið var að fyrir lægi að um kaupauka hefði verið að ræða í tilviki kæranda, með þeim sérstæða hætti sem í málinu greindi, enda viðurkennt af 67 Sambærilegt mál er að finna í úrskurði yfirskattanefndar nr. 456/1997, ST 1997:86 252
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.