Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 115
Gíslason og Jónas Þór Guðmundsson meðstjómendur. Forseti lagadeildar og
kennslustjóri sitja fundi félagsins.
Hollvinafélag lagadeildar hefur staðið fyrir því að einstaklingar og fyrirtæki
taki lögfræðitímarit á bókasafni lagadeildar í „fóstur”, þ.e. greiði af þeim
áskriftagjöld. Neðangreind ritverk hafa eignast þessa „fósturforeldra” og
þakkar lagadeild stuðninginn:
1) „Oxford journal studies of legal studies“ (Dögg Pálsdóttir hrl.)
2) „Juristen“ (Lagastoð ehf., Sigurmar K. Albertsson hrl.)
3) „Tidsskrift for rettsvitenskap" (Lára V. Júlíusdóttir hrl.)
4) „British journal of criminology“ og „Marine policy“ (Lex ehf.)
5) „Ugeskrift for retsvæsen“ (Lögmenn Skólavörðustíg 12.)
6) „Lloyd’s Maritime and Commercial Law Quarterly“ (Málflutnings-
skrifstofan Suðurlandsbraut 4 A, Reykjavík)
7) „Nordisk forsákringstidskrift” og „The Tort law review“ (Sjóvá-Al-
mennar)
5. ERLEND SAMSKIPTI
5.1 Kennara- og stúdentaskipti
Erlend samskipti lagadeildar hafa aukist mjög hin síðari ár, ekki síst með
tilkomu svokallaðra laganeta í Evrópu, fyrst og fremst Nordplus og Erasmus.
Nordplus er styrktarkerfi fyrir nemendur og kennara, sem ætlað er að auð-
velda nemenda- og kennaraskipti milli Norðurlandanna. Evrópunetið nefnist
Erasmus og er eins og Nordplus ætlað að auðvelda nemenda- og kennaraskipti
milli landa. Laganet þess kallast ELPIS (European Legal Practice Integrated
Studies).
Færist stöðugt í vöxt að stúdentar við lagadeild nýti sér þessa möguleika og
leysi hluta af námi sínu af hendi við erlenda háskóla samkvæmt heimild í
reglugerð. Þannig lögðu 22 íslenskir laganemar stund á nám við háskóla í
Evrópu á árinu 1998 og 2 í Bandaríkjunum. A árinu 1996 var gerður samningur
um stúdentaskipti á milli lagadeildar og Ohio Northern University og á árinu
1998 var einnig stofnað til sambærilegra tengsla við Washington University.
Ekki þarf að hafa mörg orð um mikilvægi erlendra samskipta sem þessara
enda er öll þróun í þá átt að gera háskólasamfélagið sem alþjóðlegast.
5.2 Aðild að öðru samstarfi
Af öðrum reglulegum samskiptum lagadeildar við lagaskóla í Evrópu má
nefna þátttöku í starfi ELA, European Association for Education and Policy og
ELFA, European Law Faculties Association, en ekki verður fjallað nánar um
samstarf þetta hér.
267