Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 22

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 22
gilda um viðkomandi athafnasvið. Hafi tjónvaldur brotið gegn fyrirmælum laga eða reglugerða sem ætlað er að treysta öryggi á tilteknu athafnasviði aukast lík- ur á að skaðabótaábyrgð teljist hafa stofnast. Við beitingu sakarreglunnar er almennt litið svo á að tjónþoli þurfi að sýna fram á að hegðun tjónvalds sé saknæm, þ.e. tjónþoli beri sönnunarbyrðina í því efni. Hann verður því að sýna fram á að tjónvaldurinn hafi hegðað sér á ann- an hátt heldur en góður og gegn maður hefði gert í sömu aðstöðu og að hin sak- næma háttsemi hafi leitt til tjónsins. í sumum tilvikum hafa dómstólar snúið sönnunarbyrðinni við að þessu leyti og ber þá tjónvaldi að sanna að hegðun hafi ekki verið saknæm. Þetta er helst talið koma til greina á athafnasviðum þar sem gera verður alveg sérstakar kröfur til aðila um að fara með gát. Þegar svona háttar er oft rætt um að dómstólar beiti sakarlíkindareglu.2 Til eru aðrar reglur en sakarlíkindareglur sem gera bótaábyrgð tiltekinna aðila ríkari en vera myndi samkvæmt sakarreglunni. Er hér um að ræða reglur sem leggja ábyrgð á tjónvald þótt hann hafi alls ekki hagað sér öðru vísi en ætlast mátti til af honum. Skaðabótaábyrgðin er þá hlutlæg. Slík ábyrgð kemur yfirleitt ekki til nema fyrir hendi sé bein lagaheimild. Regla 88. gr., sbr. 1. mgr. 90. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, er dæmi um þetta. Hún kveður á um að skráður eigandi ökutækis skuli bera ábyrgð á tjóni sem hlýst af notkun þess enda þótt tjónið verði ekki rakið til bilunar eða galla á tækinu eða ógætni öku- manns. Auk þess má nefna reglur 6. og 10. gr. laga nr. 25/1991 um skaðsemis- ábyrgð en samkvæmt þessum lagaákvæðum bera framleiðandi og dreifingar- aðili vöru, að nánari skilyrðum uppfylltum, ábyrgð á tjóni sem rakið verður til ágalla á vörunni, án þess að þar þurfi að sanna sök þeirra. Sá sem krefst bóta getur farið í mál við tjónvald neiti tjónvaldur greiðslu. Slík dómsmál eru að jafnaði einkamál sem bótakrefjandi höfðar á eigin áhættu. Tjónþoli verður þá að sýna fram á, að fyrir hendi sé bótaregla sem leiði til bóta- skyldu og að tjónvaldur hafi í reynd brotið gegn reglunni. 1 tilfelli sakarregl- unnar getur þetta stundum reynst erfitt. Sé um sakarlíkindareglu eða hlutlæga bótareglu að ræða er málið einfaldara. Þá þarf tjónþoli eftir atvikum einungis að sýna fram á að tjón hafi orðið og það stafi af notkun ökutækis, sbr. 88. gr. um- ferðarlaga, eða að vara teljist haldin ágalla, sbr. 6. gr. laganna um skaðsemis- ábyrgð.3 Hafi tjónþoli fyrir slys hegðað sér á einhvem þann hátt, sem sýnir að honum var kunnugt eða mátti vera kunnugt um að hætta væri á slysi, án þess þó að hann hafi breytt hegðun sinni, er talað um áhættutöku tjónþola (accept af risiko). Áhættutaka felur það í sér að tjónþoli er talinn hafa óbeint fallist á að 2 í H 1970 3 getur að líta dæmi um beitingu ólögfestrar sakarlíkindareglu. Þar sprakk flaska í öl- gerð með þeim afleiðingum að starfsmaður slasaðist. Bótaábyrgð var lögð á ölgerðina þar sem hún var ekki talin hafa gert það fyllilega sennilegt að gerðar hefðu verið allar nauðsynlegar ráðstafanir til að verjast því að slík sprenging ætti sér stað. 3 Dæmi um vöru sem teldist haldin ágalla er til dæmis gosflaska sem springur fyrirvaralaust í loft upp, sbr. H 1974 977. 302
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.