Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Blaðsíða 42
um, verður að telja rétt að íslenskur dómstóll leggi þá skýringu til grundvallar.
Ef hins vegar um er að ræða ákvæði sem er skýrt svo að leggja beri til
grundvallar reglur landsréttar, bæri íslenskum dómstóli að beita íslenskum lög-
um. Sjá nánar kafla 2.5.
2.3 Tvöfaldur samningur
Lúganósamningurinn er það sem kallað hefur verið tvöfaldur samningur. í
því felst að í samningnum eru ekki aðeins ákvæði um viðurkenningu og aðfar-
arhæfi dóma, heldur eru einnig settar fram alþjóðlegar vamarþingsreglur. Þegar
samningur er tvöfaldur er megináhersla lögð á beina alþjóðlega lögsögu dóm-
stóls (direkt intemational kompetence) með því að rrkin skuldbinda sig til að
hafa ekki aðrar alþjóðlegar varnarþingsreglur í lögum sínum en þær sem samn-
ingur kveður á um.10 Þjóðréttarsamningar sem aðeins fjalla um viðurkenningu
og aðfararhæfi dóma, án þess að fjalla um varnarþingsreglur, eru þar á móti
stundum nefndir einfaldir samningar.* 11 Þannig hafa einfaldir samningar að
geyma reglur um óbeina alþjóðlega lögsögu (indirekt international kompe-
tence), þ.e. reglur um það hvenær viðurkenningarríki skuli líta svo á að dóms-
ríki hafi haft alþjóðlega lögsögu sem veiti heimild til þess að viðurkenna og
fullnægja dómum uppkveðnum í dómsrrkinu.12 Helsti kosturinn við að hafa
beina alþjóðlega lögsögu er sá að í samningi er strax tekin afstaða til þess hvaða
mál það eru sem réttlæta að varnaraðili verði að þola dóm erlendis.13
2.4 Gildissvið
2.4.1 Mál sem samningurinn tekur til
Meginreglan er sú að samningurinn gildir um einkamál, þar á rneðal versl-
unarmál, án tillits til þess hvaða dómstóll fer með mál, sbr. 1. mgr. 1. gr. Lúganó-
samningsins.14 Einnig eru skatta-, tolla-, og stjórnsýslumál sérstaklega undan-
skilin.
Þar sem engu máli skiptir hvers konar dómstóll fer með rnálið teljast stjóm-
sýsludómstólar, dómstólar á sviði vinnuréttar og annars konar sérdómstólar
fullnægja þessu skilyrði. Sé litið til íslensks réttar er ljóst að Félagsdómur fellur
undir gildissvið Lúganósamningsins. Það hefur heldur enga þýðingu hvers
10 Torben Svenné Schmidt: Intemational formueret, bls. 48; Alþt. 1995, A-deild, bls. 2555.
11 Alþt. 1995, A-deild, bls. 2555.
12 Torben Svenné Schmidt: Intemational formueret, bls. 48.
13 Alþt. 1995, A-deild, bls. 2555.
14 Sjá nánar P. Jenard: OJ 1979 C 59, bls. bls. 9; Peter Schlosser: „Report on the Convention on
the Association of the Kingdom of Denmark, Ireland and the Convention on jurisdiction and the
enforcement of judgements in civil and commercial matters and the Protocol on its interpretation
by the Court of Justice". Official Journal of the European Communities 1979 C 59, bls. 71 (82-84);
Geimer og Schiitze: Internationale Urteilsanerkennung. Miinchen 1983, bls. 113-130; Peter Kaye:
Civil Jurisdiction and Enforcement of Foreign Judgements. Comwall 1987, bls. 62-64; Jan
Kropholler: Europáisches ZivilprozeBrecht. Heidelberg 1993, bls. 46-52; Stephen O'Malley og
Alexander Layton: European Civil Practice. London 1989, bls. 346-354.
322