Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Side 25

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Side 25
um þeirra sem fyrir starfsemi standa, skipti aldur barnanna sem þátt taka miklu máli. Eru vitaskuld gerðar ríkari kröfur í þessu efni eftir því sem börnin eru yngri. í því sem fer hér á eftir verður fyrst vikið að öryggi tækja og aðbúnaðar en síðan að eftirliti og leiðbeiningum. 2.2.2.2.1 Öryggi tækja og aðbúnaðar. Fjárhagsleg markmið starfsemi Teljist öryggi tækja sem notuð eru við æskulýðsstarf áfátt, þannig að slys hlýst af, stofnast að jafnaði skaðabótaskylda. Sama gildir ef aðbúnaður við starfsemi telst ófullnægjandi. Vissulega geta komið upp álitamál um hvemig aðbúnaður þurfi að vera þar sem æskulýðsstarfsemi er rekin. Oft fer starfsemi fram á vegum æskulýðsfélaga sem ekki hafa fjárhagslegan tilgang og bjóða jafnvel upp á þátttöku án end- urgjalds. Spyrja má hvort kröfur til slíkrar starfsemi séu ef til vill minni heldur en almennt verði gerðar. Þeir sem slíku vilja halda fram benda þá á að ekki sé eðlilegt að þeir sem ekki hafa þurft að greiða fyrir þátttöku í tómstundastarfi geti vænst þess að sá sem fyrir starfsemi standi beri ábyrgð á aðbúnaði þátttak- enda. Önnur sjónarmið hljóti hér að eiga við heldur en gildi þegar um sé að ræða starfsemi sem rekin sé fyrir þátttökugjöld og eftir atvikum í hagnaðar- skyni. Vamir af þessu tagi hafa verið hafðar uppi í dómsmálum. Má til dæmis vísa til hæstaréttardóms þar sem var fjallað um ábyrgð hestamannafélags á aðbúnaði við keppni, sbr. H 1977 1364. Þar var aðstaðan sú að keppandi missti stjórn á hesti sínum og tók hesturinn stefnu út af keppnisvellinum. Völlurinn hafði verið girtur af með reipi sem hesturinn sá ekki fyrr en um seinan. Þegar hesturinn hljóp á reipið datt knapinn af baki og slasaðist. Krafði hann hestamannafélagið um bætur á þeim grundvelli að óforsvaranlega hefði verið gengið frá reipinu. Það hefði átt að mála reipið í áberandi lit eða stilla upp mönnum bak við það til að tryggja að hestar hlypu ekki á það. Af hálfu félagsins var bótaskyldu mótmælt, m.a. með vísan til þess að félagið væri áhugamannafélag og enginn hafi verið skyldur til að taka þátt í kappreiðunum. Selt hafi verið inn á kapp- reiðarnar en þær hafi ekki verið haldnar í ágóðaskyni. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að umbúnaður á skeiðvellinum hafi verið á ábyrgð hesta- mannafélagsins. Umbúnaðurinn hafi ekki verið eðlilegur og forsvaranlegur miðað við aðstæður og hafi það verið á ábyrgð félagsins. M.a. með vísan til þess var félagið talið skaðabótaskylt. Sérstaklega var tekið fram í héraðsdóm- inum að ekki skipti máli í því sambandi að kappreiðarnar voru ekki haldnar í fjáröflunarskyni. í Hæstarétti sagði um þetta að félagið hefði selt almenningi aðgang að skeiðvellinum og heitið verðlaunum eigendum þeirra hesta sem fyrstir kæmu í mark. Hefði félaginu borið að sjá um að skeiðbrautir væru þannig lagðar og umbúnar að þær byðu eigi heim sérstakri hættu. Þessa skyldu var félagið talið hafa vanrækt og var það því talið skaðabótaskylt. Knapinn, sem talinn var hafa þekkt vel allar aðstæður á skeiðvellinum, var talinn eiga nokkra eigin sök á slysinu. Var hann látinn bera tjón sitt að hálfu. Að dómi Hæstaréttar 305
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.