Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 32

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 32
stjórn þeirra félaga sem að starfseminni standa, verður líklega að líta svo á að öll félögin beri óskipta ábyrgð. 2.2.3.1.2 Hegðun starfsmanns talin saknæm Um það skilyrði að hegðun starfsmanns sé saknænt gilda sömu sjónarmið og lýst var að framan þar sem fjallað var um sakarregluna. Vísast til þess. 2.2.3.1.3 Tjóni valdið í starfi Það er skilyrði ábyrgðar samkvæmt reglunni um vinnuveitandaábyrgð að starfsmaður hafi valdið tjóninu í starfi sínu. Með öðrum orðum verður sá senr á sök á tjóni að hafa valdið tjóninu við framkvæmd þess starfs sem hann gegnir í þágu vinnuveitandans eða í nánum tengslum við starfið.11 Við mat á því hvort þetta skilyrði sé uppfyllt má til dæmis líta til vinnutíma, sbr. H 1975 702, þar sem fjallað var um slys sem varð við fimleikaæfingu eftir skólatíma en dóm- urinn er reifaður á bls. 308 hér að framan. Þar voru málsástæður um vinnutíma íþróttaþjálfarans taldar varða úrlausn þess hver bæri endanlega ábyrgð á tjóni og komu ekki til skoðunar í Hæstarétti þar sem ekki var talin hafa sannast sök í málinu. Héraðsdómur tók þetta hins vegar til skoðunar og taldi það ekki velta á vinnutíma þjálfarans hvort skólinn bæri fébótaábyrgð á slysinu, þar sem þjálfun á greindri æfingu þótti í svo nánum tengslum við starfsskyldur íþrótta- kennarans almennt að þar yrði ekki á milli greint. Rétt er sjálfsagt með hliðsjón af framansögðu að líta svo á að vinnutími geti haft talsverða þýðingu en hann ráði hins vegar ekki úrslitum. I þessu samhengi má nefna, að því er varðar ferðir á vegum æskulýðsfélaga, að væntanlega er erfitt að staðhæfa hvenær vinnutíma leiðbeinanda sem eru með í för lýkur. Verður í slíkum tilvikum væntanlega að gera ráð fyrir að skaðaverk séu unnin í starfi eða í nægum tengslum við starf nema sterkar líkur séu leiddar að hinu gagnstæða. Almennt séð ber því æsku- lýðsfélag ábyrgð á skaðaverkum sem sjálfboðaliðar eða starfsmenn valda í ferð- um á þeirra vegum. Hegði starfsmaður sér með svo óvenjulegum eða afbrigðilegum hætti að almennt verði ekki gert ráð fyrir að menn hagi sér þannig við vinnu sína má telja að vinnuveitandi sé ekki ábyrgur.12 Sem dæmi um þetta má nefna H 1962 74. Þar var málum svo háttað að tveir starfsmenn lentu í áflogum í flökunarsal hraðfrystihúss þar sem þeir unnu. Annar starfsmaðurinn var 42 ára en hinn 16 ára. Sá yngri hélt á hnífi og slasaði þann eldri með honum. Sá sem slasaðist höfðaði bótamál og stefndi bæði þeim sem hnífnum beitti og vinnuveitand- anum. I héraðsdómi var vinnuveitandinn sýknaður með þeim rökstuðningi að atferli mannanna hafi verið það fjarlægt starfsskyldum þeirra sem starfsmanna hraðfrystihússins að slysinu verði ekki jafnað til slyss í starfi. í Hæstarétti var þessi úrlausn héraðsdóms staðfest. Um þetta má líka nefna danskan landsréttar- 11 Sjá Arnljót Björnsson: Skaðabótaréttur. Reykjavík, 1988, bls. 93. 12 Sjá Arnljót Björnsson: Skaðabótaréttur. Reykjavík, 1988, bls. 94. 312
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.