Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 51

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 51
reglu eru þau að sanngjamt er talið að dómstóll beiti lögum þess rikis þar sem vamaraðili kveðst eiga heimili fremur en þeim lögum sem gilda í lögsögu hans.47 Framangreindar reglur geta leitt til þess að dómstólar í fleiri en einu rrki eigi lögsögu. Við þessar aðstæður á sóknaraðili val um það fyrir hvaða dómstóli málið er höfðað. Þegar ákvörðun hefur verið tekin um það hvar höfða skal málið verður það ekki borið undir annan dómstól vegna reglna 21. og 23. gr. um litis pendens.48 Vera kann að lög þess ríkis þar sem stefndi á heimili hafi að geyma tvær mis- munandi skilgreiningar á hugtakinu heimili, annars vegar samkvæmt almenn- um reglum einkamálaréttar og hins vegar samkvæmt réttarfarslögum. Ber þá að beita þeim síðarnefndu við ákvörðun á lögsögu dómstóls 49 3.2.3 Félög og aðrar lögpersónur Samkvæmt 1. mgr. 53. gr. Lúganósamningsins gildir sú regla um félög og aðrar lögpersónur að þau teljast eiga heimili á aðsetri sínu. Þegar ákvarða skal um aðsetrið skal dómstóllinn þó beita þeim lagaskilareglum sem við hann gilda.50 í samningnum er því ekki sérstaklega skilgreint hvað sé aðsetur félags eða annarrar lögpersónu frekar en reynt er að skilgreina hugtakið heimili. Ástæðan er sú að mismunandi er háttað eftir löggjöf einstakra ríkja hvert er aðsetur lögpersónu.51 Sum ríki láta ákvæði í samþykktum ráða úrslitum um þetta, en önnur fara eftir því hvar aðalstöðvar eru og enn aðrar aðferðir eru þekktar. Að íslenskum lögum fer ákvörðun um hvort heimili félags er hér á landi eftir heildarmati á því hversu það er í raun tengt íslenskum lögum og hagsmunum.52 I 2. mgr. 53. gr. kemur fram að þegar ákvarða skal hvort fjárvörslusjóður eigi heimili í samningsríki þar sem mál hefur verið höfðað skal dómstóllinn beita þeim lagaskilareglum sem við hann gilda. Fjárvörslusjóður (e. trust) er sérstakt fyrirbæri í breskum og írskum rétti.53 Þetta réttarsamband kemst á þegar stofn- andi (settlor) felur einum eða fleiri einstaklingum (trustees) að stjóma fjármun- um í þágu eins eða fleiri einstaklinga sem njóta eiga góðs af því (beneficiaries) eða til hagsbóta lögmætu markmiði, þannig að útborgun verðmætanna falli til 47 P. Jenard: OJ 1979 C 59, bls. 17. 48 Sjá Lennart Pálsson: Bryssel- och Luganokonventionema, bls. 68; Torben Svenné Schmidt: Intemational formueret, bls. 60. 49 P. Jenard: OJ 1979 C 59, bls. 17. 50 Sjá P. Jenard: OJ 1979 C 59, bls. 57; Peter Schlosser: OJ 1979 C 59, bls. 96; Peter Kaye: Civil Jurisdiction and Enforcement of Foreign Judgements, bls. 313-339; Jan Kropholler: Europaisches ZivilprozeBrecht, bls. 380-382; O'Malley & Layton: European Civil Practice, bls. 839-844. 51 P. Jenard: OJ 1979 C 59, bls. 57. 52 Alþt. 1995, A-deild, bls. 2571. Um heimilisfang hlutafélaga í íslenskum rétti sjá Stefán Már Stefánsson: Hlutafélög og einkahlutafélög. Reykjavík 1995, bls. 66-67. 53 Cheshire & North: Private Intemational Law, bls. 305. Sjá nánar Peter Schlosser: OJ 1979 C 59, bls. 105-108; O'Malley & Lavton: European Civil Practice, bls. 439-441. 331
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.