Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Side 56

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Side 56
til grundvallar í málinu. í þessu máli var bent á að stundum megi líta á eina eða fleiri af skyldunum sem aðalskyldur og þá séu aðrar aukaskyldur. Það er þá aðalskyldan sem ræður úrslitum um vamarþingið. Þrátt fyrir framangreindan dóm hefur verið á það bent að ekki sé alltaf hægt að ákvarða hvaða skylda sé aðalskylda í samningssambandi. Afleiðingin verður þá væntanlega sú að efndastaður á mismunandi skyldum verður á fleiri en einu varnarþingi.66 3.3.2.5 Efndastaður skuldbindingar Gera má ráð fyrir því að efndastaður sé jafnan sá sami og afhendingarstaður. Það ræðst þó nánar af afhendingarskilmálum og öðrum ákvæðum í samningi aðila, auk þess sem stundum er hægt að leiða efndastaðinn óbeint af samningn- um.67 A hinn bóginn getur staðurinn þar sem samningurinn var gerður ekki ver- ið grundvöllur fyrir vamarþingi samkvæmt Lúganósamningnum.68 Mál 12/76 Tessili gegn Dunlop [1976] ECR 1473. í þessu máli tók Evrópudómstóll- inn fram að ekki væri hægt að setja fram sameiginlega skilgreiningu á því hver væri efndastaður samnings, enda væri munur á því hvemig efndastaður samninga er ákveðinn samkvæmt rétti einstakra samningsríkja. Ákveða verður þann stað þar sem skuldbindinguna skal efna á grundvelli þeirra laga sem beita skal um hina umdeildu skuldbindingu samkvæmt lagaskilareglum við þann dómstól sem málinu er stefnt fyrir. Mál 56/79 Zelger gegn Salinitri [1980] ECR 89. Þar kom fram að sé efndastaður samningsskuldbindingar ákveðinn af aðilunum með samkomulagi, sem gilt er sam- kvæmt þeim landsrétti sem gildir um samninginn, sé dómstóllinn á þeim stað bær til að skera úr um ágreining um þessa skuldbindingu á grundvelli 1. tölul. 5. gr., óháð því hvort formkröfur samkvæmt 17. gr. um vamarþingssamninga séu uppfylltar. 3.3.2.6 Mál sem varða vinnusamninga einstakra manna í seinni hluta 1. tölul. 5. gr. er sérregla um vinnusamninga einstakra manna. Þar kemur fram að sé um að ræða vinnusamninga einstakra manna megi sækja mál fyrir dómstóli þess staðar þar sem launþeginn starfar að jafnaði. Starfi laun- þegi að jafnaði ekki í tilteknu ríki megi sækja mál fyrir dómstóli þess staðar þar sem starfsstöðin er sem réð hann til starfsins.69 I samningaviðræðunum um Lúganósamninginn fóru EFTA-rikin fram á það að í samningnum yrði sérstakt ákvæði um vinnusamninga til þess að tryggja að 66 Chesire & North: Private Intemational Law, bls. 295. 67 Allan Philip: EU-IP, bls. 48. 68 Stein Rognlien: Luganokonvensjonen, bls. 141. Sjá nánar um rökin fyrir því að þessi leið var ekki farin P. Jenard: OJ 1979 C 59, bls. 23. 69 Sjá til hliðsjónar mál 32/1989 Six Constructions gegn Humbert ECR 11989] 341. 336 i
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.