Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Síða 60

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Síða 60
dómstól á heimilisvamarþingi þess sem framfærslunnar nýtur á því tímamarki er breytingarinnar er krafist.86 3.3.4 Brotavarnarþing 3.3.4.1 Hvað er mál um skaðabætur utan samninga? I málum um skaðabætur utan samninga skal sækja mál fyrir dómstóli þess staðar þar sem tjónsatburður varð, sbr. 3. tölul. 5. gr. Lúganósamningsins. Brotavamarþing gildir því um allar kröfur sem eiga rót sína að rekja til skaða- verks utan saminga (forum delicti commissi).87 I Kalfelis málinu88 sló Evrópudómstóllinn því föstu að hugtakið „skaðabætur utan samninga“ bæri að skoða sem sjálfstætt hugtak sem næði yfir allar kröfur um að á varnaraðila verði lögð skaðabótaábyrgð sem ekki tengist samningi í skilningi 1. tölul. 5. gr. Enn fremur var tekið fram að dómstóll, sem er bær skv. 3. tölul. 5. gr. til að kveða á um þann hluta kröfu sem byggist á reglunum um skaðabætur utan samninga, er ekki bær til þess að kveða á um aðra þætti sömu kröfu sem styðst við aðrar reglur, t.d. reglur um skaðabótaábyrgð innan samn- 89 ínga. Telja verður að innan ákvæðisins falli bæði mál vegna einstakra tjónsatburða sem og vegna viðvarandi ástands. Sem dæmi má taka umferðaróhöpp, skað- semisábyrgð,90 nábýlistjón, mengunar- og umhverfisslys, atvinnurekstrartjón vegna óréttmætra samkeppnishátta, brot á einkaleyfi og önnur brot á hugverka- réttindum. Þá verður einnig að telja að innan 3. tölul. 5. gr. falli ófjárhagslegt tjón og skaðabótaskylda vegna ærumeiðinga eða brota á friðhelgi einkalífsins.91 3.3.4.2 Hver er staðurinn þar sem tjónsatburðurinn varð? Spyrja má hver sé staðurinn þar sem tjónsatburðurinn varð í skilningi 3. tölul. 5. gr. samningsins.92 Almennt er fyrirhafnarlítið að ákvarða hvar staður- inn er, en í vissum tilvikum getur það þó verið erfiðleikum bundið. Aðstaðan getur t.d. verið sú að staðurinn þar sem atvik sem veldur tjóni verður sé annar 86 Torben Svenné Schniidt: Intemational formueret, bls. 67. 87 I greinargerð með frumvaipi til laga nr. 68/1995 um Lúganósamninginn um dómsvald og um fullnustu dóma í einkamálum er eftirfarandi dæmi tekið: Ef Islendingur veldur skaðabótaskyldu tjóni í Grikklandi með því að skemma bifreið er unnt að stefna honum fyrir dómstólum í Grikklandi og er hinn gríski dómur fullnustuhæfur á Islandi ef því er að skipta. Fullyrða má að þetta sé eitt hagnýtasta varnarþingið ásamt samingsvamarþinginu. Sjá Alþt. 1995, A-deild, bls. 2563. 88 Sjá mál 189/1987 Kalfelis gegn Schröder [1988] ECR 5565. Sjá hins vegar mál C-261/90 Reichert [1992] ECR-I 2149 þar sem Evrópudómstóllinn komst að því að svokölluð „actio pauliana" samkvæmt frönskum rétti félli utan ákvæðis 3. tölul. 5. gr. 89 Sjá einnig mál C-220/88 Dumez France gegn Hessische Landesbank [1990] ECR1-49; mál C- 364/93 Marinari [1995] ECR 1-2719; mál C-51/97 Réunion Européenne. 90 Sjá til athugunar UfR 1994. 342. 91 Stein Rognlien: Luganokonvensjonen, bls. 147. 92 P. Jenard: OJ 1979 C 59, bls. 26, tekur fram að sérfræðinganefndin hafi ekki viljað taka af- stöðu til þessa álitaefnis. 340
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.