Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 76

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 76
réttindi yfir fasteign á íslandi getur sóknaraðili, ef vamaraðili er búsettur á ís- landi, valið milli þess hvort liann höfðar málið á heimilsvarnarþingi, varnar- aðila eða á fasteignavarnarþingi. Einungis er um að ræða skylduvarnarþing ef það er aðalatriði ágreiningsins sem 16. gr. tekur til. Þetta leiðir af 19. gr. en þar segir að sé dómstóli í öðru samningsríki falið að skera úr ágreiningi „sem í aðalatriðum" varðar málefni sem dómstólar í öðru samningsríki hafa einir dómsvald um samkvæmt 16. gr. skuli hann þá sjálfkrafa vísa máli frá dómi.159 3.5.2 Mál um réttindi yfir fasteign Meginreglan samkvæmt a-lið 1. mgr. 16. gr. er sú að aðeins má sækja mál um réttindi yfir fasteign eða leigu fasteignar í því samningsríki þar sem fast- eignin er. Frá þessu er undantekning í b-lið 1. tölul. 16. gr. um mál um fast- eignaleigusamninga sem gerðir eru um tímabundin persónuleg afnot til allt að sex mánaða óslitið. Spyrja má hvað átt sé við með því þegar talað eru um „réttindi yfir fasteign" í a-lið 1. tölul. 16. gr. Draga má þá ályktun af lögskýringargögnum, samanburði við erlenda texta Lúganósamningsins og dómaframkvæmd að hér sé átt við hlutaréttindi í tengslum við fasteignina, hvort heldur um er að ræða bein eða óbein eignarréttindi. Hefur t.d. verið talið að utan ákvæðisins falli skaðabóta- mál sem byggjast á réttindum yfir fasteigninni eða tjóns sem verður á fast- eign.160 Evrópudómstóllinn hefur slegið því föstu að hugtakið „mál um réttindi yfir fasteign" beri að skýra sjálfstæðri skýringu og nái einungis til mála þar sem taka þarf afstöðu til stærðar eignarinnar, fylgifjár, eignarhalds eða tilvistar annarra hlutaréttinda yfir eigninni.161 Með sama hætti og gildir um hugtakið réttindi yfir fasteign ber að túlka hug- takið leigu á fasteign í a-lið sjálfstæðri skýringu. Finna má vísi að slíkri túlkun lijá P. Jenard þar sem segir að hugtakið feli m.a. í sér álitamál varðandi gildi og túlkun á leigu- og ábúðarsamningum, um skaðabætur vegna tjóns sem leigutaki veldur á fasteign, brottflutnings af eigninni o.s.frv.162 Þá er þess að geta að Evrópudómstóllinn hefur túlkað hugtakið þröngt.163 Frá framangreindri nteginreglu er gerð undantekning í b-lið 1. tölul. 16. gr. um mál varðandi fasteignaleigusamninga sem gerðir eru um tímabundin per- sónuleg afnot til allt að sex mánaða óslitið.164 Slík mál verða annað hvort höfð- uð í því ríki þar sem fasteignin er eða þar sem vamaraðili á heimili, ef leigutaki 159 Sjá mál 288/82 Duijnstee gegn Goderbauer [1983] ECR 3663. 160 Sjá nánar Peter Schlosser: OJ 1979 C 59, bls. 120 o.áfr. 161 Sjá mál C-115/88 Reichert gegn Dresdner Bank [1990] ECR-I 27. Sjá einnig mál C-294/92 Webb gegn Webb [1994] ECR 1-1717; mál 292/93 Lieber gegn Göbel {1994] ECRÚ-2535. 162 P. Jenard: OJ 1979 C 59, bls. 35. 163 Sjá mál 73/77 Sanders gegn Van der Putte [1977] ECR 2383 þar sem dómstóllinn hafnaði því að um leigu á fasteign væri að ræða í þeim skilningi sem 16. gr. leggur í hugtakið. 164 P. Jenard og G. Möller: OJ 1990 C 189, bls. 75. 356
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.