Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Síða 82

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Síða 82
Mál 214/89 Powell Duffryn gegn Petereit [1992] ECR 1-1745. Hér var því slegið föstu að vamarþingssamningur geti uppfyllt kröfumar í 17. gr., enda þótt hann sé tek- inn upp í samþykktir hlutafélags og samþykktur í samræmi við landslög og sam- þykktir félagsins, og efni hans fjallar um að dómstóll í samningsríki skuli vera bær til að útkljá deilumál milli félagsins og hluthafanna. í a-lið 1. tölul. 17. gr. er tekið svo til orða að varnarþingssamningur skuli vera skriflegur eða „munnlegur og staðfestur skriflega“. Til skýringar þessu má nefna dóminn í Segoura málinu. Mál 25/76 Segoura gegn Bonakdarian [1976] ECR 1851. Þar kom fram að hafi samningur verið gerður munnlega teljast formkröfur 17. gr. því aðeins uppfylltar að skrifleg staðfesting seljanda með tilkynningu um almenna viðskiptaskilmála hans hafi verið skriflega samþykkt af kaupanda. Þá sagði að þeirri staðreynd að kaupandi hefur ekki borið fram mótmæli gegn einhliða staðfestingu viðsemjanda síns sé því aðeins unnt að jafna við samþykki á vamarþingsskilmálunum að munnlegi samning- urinn hafi verið liður í viðvarandi viðskiptasambandi aðilanna sem stofnað var til á grundvelli almennra viðskiptaskilmála samningsaðilanna sem hafa að geyma varnar- þingsákvæði. Mál 313/85 Iveco Fiat gegn van Hool [1986] ECR 3337. Þar var tekið til úrlausnar hvernig túlka beri 17. gr. þegar skriflegur samningur, sem hefur að geyma vamar- þingsákvæði og sem samkvæmt efni sínu er aðeins unnt að framlengja með skrifleg- um samningi, er runninn úr gildi, en er samt sem áður áfram réttarlegur grundvöllur samningssambands milli aðilanna. Formreglur ákvæðisins eru uppfylltar ef 1) aðil- amir geta samkvæmt gildandi lögum framlengt upprunalega samninginn án þess að það gerist skriflega, eða 2) ef annar aðilanna annars staðfestir vamarþingsákvæðið skriflega eða öll þau ákvæði sem áfram er stuðst við með þegjandi samkomulagi, og sem meðal annars tekur til þessa ákvæðis án þess að hinn aðilinn sem móttekið hefur staðfestinguna hreyfi mótmælum Það hefur ekki sérstaka þýðingu hvor aðilanna hefur staðfest samninginn skriflega. Samkvæmt því sem fram kemur í Bergltoefer málinu188 ber þannig að túlka ákvæðið á þann veg að formkrafa þess telst uppfyllt þegar leitt hefur verið í ljós að varnarþingsákvæðið hefur verið ákveðið með skýru munnlegu sam- komulagi, að skrifleg staðfesting eins aðila samningsins hefur gengið til hins aðilans og að sá síðarnefndi hafi ekki borið fram mótmæli. Þá er það skilyrði þess að síðari hluta a-liðar verði beitt um samning, sem er munnlegur og síðar staðfestur skriflega, að aðilar hafi verið sammála um vamarþing þegar hinn munnlegi samningur var gerður.181' 188 Sjá mál 221/84 Berghoefer gegn ASA [1985] ECR 2699. 189 Sjá mál 25/76 Segoura gegn Bonakdarian [1976] ECR 1851; mál 221/84 Berghoefer gegn ASA [1985] ECR 2699; mál 313/85 Iveco Fiat gegn van Hool [1986] ECR 3337. 362
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.