Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 92

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 92
hans, sem aðrir eru undanteknir frá. Enskumælendur tala í þessu sambandi um equality of opportunity, norðurlandabúar um chancelikhet, og við getum notað orðasamband eins og tækifærisjöfnuð. Nú veit ég vel að margt kemur í veg fyrir raunverulegan tækifærisjöfnuð, t.d. ræður barn ekki hvern aðbúnað foreldrar þess veita því, og ýmislegt fleira kemur til. En samt er tækifærisjöfnuður grund- vallaratriði í stjórnskipun flestra landa, og er talinn mikilvægur vegna þess, að hann stuðlar að því að hæfir einstaklingar fái að njóta sín. Einnig kemur þetta mjög vel heirn og saman við þá fornu hugmynd að menn séu skapaðir jafnir, og að það sé í eðli sínu ranglátt að örlög eins manns séu að vera þræll, og annars að vera herra. Sú hugmynd er, að ég tel, afar vel til þess fallin að skapa friðsamt samfélag, vegna þess að þar sem hún er útfærð í virkum og gildandi lögum get- ur fólk ekki með réttu ásakað einhverja samborgara sína um ranglæti og arðrán. A Islandi koma sjónannið af þessu tagi fram í 65. og 75. grein stjómarskrár- innar, en fyrir breytinguna 1995 voru slíkar reglur í 69. og 78. gr. Öll lönd sem ég þekki til hafa reglur sem ganga í svipaða átt - meira að segja Bretland, þrátt fyrir formlegar leifar aðalsveldis og stjómskipunarlög sem eru að verulegu leyti óskráð. Eg tel rétt að minnast á, þótt skrýtið sé að gera það í tímariti ætluðu lög- fræðingum, að stjórnskipunarreglum er ætlað raunverulegt gildi, samkvæmt hljóðan sinni og réttum lögskýringaraðferðum. Ríki, þar sem þær eru aðeins virtar þegar valdhöfum hentar, er að mínu áliti ekki réttamíki. Þetta var lagalega hliðin í hnotskurn. Hins vegar hef ég einnig þá pólitísku skoðun, sem er í samræmi við ofangreint en gengur ef til vill lengra að ein- hverju leyti, að frjáls, sjálfstæður einstaklingur, sem tekur afleiðingum mistaka sinna og nýtur að sama skapi umbunar fyrir það sem hann gerir vel, hafi jafnvel enn meiri möguleika en aðrir til að gera samfélagi sínu varanlegt og almennt gagn. Ég tel ranglátt að drepa niður frumkvæði og vinnusemi slíks fólks, til dæmis með því að veita öðrum forréttindi eða forgjöf til að gera það sem það vill gera og getur gert. Og burtséð frá þeirri spurningu hvort ranglæti sé í eðli sínu heimskulegt, þá er slíkt heimskulegt þegar af þeirri ástæðu, að það kemur í veg fyrir að dugandi fólk fái gert sjálfu sér og samfélaginu það gagn sem það vill gera og getur gert. Þetta er ein helsta ástæðan fyrir tilkomu þeirra lagalegu reglna, sem ég var að minnast á. Sú hugmyndafræði, sem liggur að baki þeim, höfðar afar sterklega til flests fólks, þar á meðal mín. Mér verður á að hugsa hvort almenn velferð og velgengni vesturlandabúa nú á tímum, og góður friður í samfélögum þeirra, kunni ekki að miklu leyti að byggjast á þeiiri reglu, sem mikilvægt er talið í flestum ríkjum að fylgt sé, en hún er sú að lög megi ekki hygla sumum og hefta nröguleika annarra, og að hver maður megi stunda þá at- vinnu sem hann kýs, að fullnægðum skilyrðum sem gilda jafnt um allt samfé- lagið. Eins og ég gaf í skyn hér að ofan eru þessi sjónarmið ekkert byltingar- kennt nýjabrum. Þau voru það kannske 1776 og 1789, en nú eru þau löngu við- urkennd í stjórnskipunarlögum allra vesturlanda, og við erum þar ekki undan- skilin, eða a.m.k. er ekki opinberlega játað að svo sé. Ég get ekki borið á móti því, að á sínum tíma var nauðsynlegt að takmarka 372
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.