Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 101

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1999, Page 101
Þann 1. október 1999 var haldið málþing sem bar yfirskriftina: Samkeppnis- löggjöf á Islandi, hlutverk-markmið-tilgangur? Fyrirlesarar voru: Páll Ásgríms- son, forstöðumaður lögfræðideildar Landsíma Islands hf., Stefán Geir Þórisson hrl., Ragnar Aðalsteinsson hrl., Jóna Björk Helgadóttir, lögfræðingur hjá Sam- keppnisstofnun, Guðjón Rúnarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Verslunarráðs og Jón Magnússon hrl. og varaformaður Neytendasamtakanna. Hrafn Bragason hæstaréttardóniari flutti í lok framsöguerinda samantekt úr þeim og að því loknu stjórnaði Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavíkur-Aka- demíunnar, pallborðsumræðum. Ráðstefnustjóri var Helgi Jóhannesson hrl. Málþingsnefndina skipuðu Ragnhildur Amljótsdóttir varaformaður, Davíð Þór Björgvinsson prófessor og Steinunn Guðbjartsdóttir hdl. Málþingsgestir voru 164talsins. 4. Móttaka fyrir nýútskrifaða lögfræðinga Að venju var nýútskrifuðum lögfræðingum boðið til móttöku á vegum stjórn- ar félagsins í því skyni að kynna þeim starfsemi félagsins. Móttakan var þann 28. maí 1999 í Borgartúni 6. Um 30 manns mættu. Auk nýútskrifaðra lög- fræðinga var framsögumönnum á fræðafundum félagsins á starfsárinu boðið í móttökuna. 5. Kínaferð Dagana 19.-26. apríl 1999 efndi lögfræðingafélagið til Kínafarar fyrir félags- menn sína. Þátttakendur voru milli 80 og 90 talsins, þar af um 55 lögfræðingar. Ferðin var skipulögð í samvinnu við sendiráð íslands í Peking og All China Lawyers Association. Dagskrá ferðarinnar var hin glæsilegasta og gafst þátttak- endum tækifæri til að heimsækja t.a.m. Hæstarétt Kína, saksóknaraembættið, þingið, alþjóðlegar lögmannsstofur í Peking, háskóla o.fl. Þá voru einnig skipu- lagðar ferðir til að skoða sögufræga staði, t.a.m. Forboðnu borgina, Sumar- höllina, Kínamúrinn o.fl. Lára Júlíusdóttir hrl. ritaði grein í Tímarit lögfræðinga um ferðina. Helgi Jóhannesson hrl. og Benedikt Bogason skrifstofustjóri ásamt framkvæmdastjóra félagsins, Brynhildi Flóvenz, sáu um öll framkvæmdaatriði ferðarinnar f.h. félagsins. 6. Útgáfustarfsemi Tímarit lögfræðinga kom að venju út fjórum sinnum á starfsárinu. Ritstjóri tímaritsins er Friðgeir Bjömsson dómstjóri og þakkar stjórn félagsins honum vel unnin störf á því sviði. Steinunn Guðbjartsdóttir hdl. er framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga og eru henni einnig færðar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu tímaritsins. Auk útgáfu Tímarits lögfræðinga gefur lögfræðingafélagið út fréttabréf fé- lagsins. Fréttabréfið er gefið út þegar þurfa þykir en þar birtast tilkynningar til félagsmanna um það sem framundan er í starfsemi félagsins. 381
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.