Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Síða 37
Þá er það skilyrði fyrir opinberri skráningu að engar viðskiptahömlur hvíli
á hlutabréfum, sbr. 1. tl. 4. gr. reglugerðar nr. 434/1999 um opinbera skráningu
verðbréfa í kauphöll, en frjáls viðskipti með hlutabréf eru talin auka verðgildi
hluta. Þá tryggja frjáls viðskipti rétt minni hluthafa í félögum sem ekki hafa
atkvæðavægi til þess að hafa áhrif á stjómun eða starfsemi þeirra.11 Þetta hefur
verið kallað að hluthafamir geti greitt atkvæði með fótunum.12 Þannig geta þeir
hluthafar, sem ekki treysta lengur á stefnu félagsins í starfsemi sinni, selt hluti
sína og fjárfest annars staðar þar sem þeir telja betri von um ávöxtun.
4.1.4 Betri samkeppnisstaða
Framangreindir þættir, þ.e. auðveldari aðgangur að fjármagni og gæða-
stimpill, kunna að leiða til þess að samkeppnisstaða hins skráða félags verði
betri en þeirra sem ekki eru skráð. Með auðveldum aðgangi að fjármagni getur
félagið ráðist í verkefni og uppbyggingu með meiri hraða en samkeppnisaðilar.
Gæðastimpillinn veldur því að félagið fær betri viðskiptakjör og þarf hugsan-
lega að eyða minni fjármunum í markaðssetningu við að byggja upp traust neyt-
enda og viðskiptamanna.
4.1.5 Breyting á eignarhaldi - dreifing eignarhalds
Skráning hlutabréfa í kauphöll getur verið liður í að breyta eignarhaldi á
félagi. Alþekkt er að fyrirtæki byrja oft starfsemi sína sem atvinnurekstur eins
eða fárra aðila og þá oft innan sömu fjölskyldu. Þegar fyrirtækið stækkar og
stofnendur hyggjast draga saman vinnu verður oft að ráði að þeir selji allan eða
verulegan hluta af eign sinni í félaginu. Þá getur markmiðið hjá stofnandanum
verið að dreifa áhættu í fjárfestingu með því að minnka eignarhlutdeildina og
fjárfesta með öðrum hætti. Sú staða getur komið upp að eigendur telji rétt að
breyta um stjóm og eignarhald og stuðla að ákveðnum kynslóðaskiptum í félag-
inu.13 Ein leið til þess að fjármagna slíka breytingu, eða opna fyrir sölumögu-
leika, er að skrá verðbréf félags í kauphöll.
I sumum tilvikum getur skráning í kauphöll verið liður í því að dreifa eignar-
haldi á félögum. Dæmi um þetta hér á landi er einkavæðing ríkisfyrirtækja.
Með dreifðu eignarhaldi kann einnig að verða breyting á valdahlutföllum í við-
komandi félagi. Aðaleigandi félags getur þurft að láta af hendi ráðandi hlut í
félaginu og þannig misst stjóm á félaginu sem hann hafði áður. Með mikilli
dreifingu á eignarhaldinu breytist stjómun félags úr því sem kalla mætti hlut-
hafastjórnun (það að stærri hluthafar ráða ferðinni) yfir í stjómendavald (stjóm
og framkvæmdastjóri ráða ferðinni þar sem enginn einn hluthafi hefur mikið
atkvæðavægi).
11 Stefán Már Stefánsson: Hlutafélög og einkahlutafélög, bls. 110-111.
12 Sjá hér Andersen og Clausen: Börsretten. bls. 144.
13 Sjá hér Andersen og Clausen: Börsretten, bls. 139-140.
231