Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Side 79

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Side 79
háttar verðbreytingar á bréfum tæpast koma til skoðunar þar sem í þeim tilvik- um væri mjög erfitt að sýna fram á orsakatengsl. Ef hins vegar liggur fyrir að upplýsingarnar, sem voru villandi, voru þýðingarmiklar fyrir afkomu fyrirtækis og starfsemi almennt og að á svipuðum tíma og þær komu fram verði veruleg breyting á verði verðbréfa, myndu menn almennt álykta svo að orsakatengsl teldust sönnuð á fullnægjandi hátt. Ef meintum tjónvaldi tækist hins vegar að leiða að því líkur að aðrir þættir, sem hann ber ekki ábyrgð á, hafi átt stærstan þátt í verðbreytingum en hinar villandi upplýsingar lítinn, myndi hann að jafnaði losna undan ábyrgð. Dómur Hæstaréttar Danmerkur í svokölluðu Hafniamáli,77 Atvik málsins voru í stuttu máli þau fyrirtækið Hafnia Holding A/S hafði í júlímánuði 1992 boðið út hlutafé. Mánuði síðar eða þann 19. ágúst óskaði Hafnia eftir greiðslustöðvun. Félagið varð síðan gjaldþrota þann 12. maí 1993.1 málinu kom í ljós að skráningar- lýsingin hafði ekki gefið rétta mynd af stöðu félagsins þegar útboðið fór fram. Talið var að ýmsar fjárhagslegar upplýsingar hefðu verið ófullnægjandi auk þess sem tilteknar upplýsingar, sem taldar voru hafa þýðingu, komu ekki fram í skráningar- lýsingunni. Undirréttur dænrdi bankann sem hafði umsjón með útboðinu og þrjá endurskoðendur félagsins til bótaábyrgðar. Einnig viðurkenndi hann kröfu annars aðilans í þrotabú Hafnia. Tveir stjómarmenn voru hins vegar sýknaðir í undirrétti á þeim grundvelli að þeir hefðu ekki vitað eða mátt vita að umræddar upplýsingar væru rangar. Þessir stjórnarmenn höfðu einungis starfað í einn mánuð hjá félaginu og hafði undirbúningur skráningarlýsingar verið langt kominn þegar þeir hófu störf. í dómi undirréttar kom fram að stefnendur málsins hafi mátt treysta á skráningar- lýsinguna en ekki þurft að taka mið af viðbótarupplýsingum í fjölmiðlum eða ráð- gjöf annarra aðila. Þá kemur fram r dóminum að yfirgnæfandi líkur hafi verið á því að fjárfestar hefðu ekki keypt hluti ef fullnægjandi upplýsingar hefðu legið fyrir. Raunar kom einnig fram í dóminum að ólrklegt hefði verið að útboðið hefði farið fram ef fullnægjandi upplýsingar hefðu komið fram. Hæstiréttur sýknaði hins vegar aðila af öllum kröfum. Niðurstaða Hæstaréttar byggðist á því að þótt fyrir lægi að tilteknar upplýsingar í skráningarlýsingunni hafi verið ófullnægjandi hafi orsakir gjaldþrots Hafnia ekki verið að finna í þeim þáttum. Þeir þættir sem orsökuðu gjaldþrotið að mati Hæstaréttar voru einkum neikvæð eiginfjárstaða vegna taps á fjárfestingum í félögunum Baltica og Skandia sem rekja mátti m.a. til þess að Danir felldu Maastrict-sáttmálann í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá tók dómstóllinn fram að í skráningarlýsingunni hefðu skýrlega komið fram upplýs- ingar um slæma fjárhagstöðu Hafnia og að hlutafjárhækkunin væri liður í fjárhags- legri endurskipulagningu félagsins. 22 Sjá hér dóm Hæstaréttar Danmerkur í máli nr. 479/1999 sem kveðinn var upp þann 28. júní 2002. Upplýsingar um dóminn er að finna á heimasíðu réttarins http://www.hoejesteret.dk. Dómur undirréttar (S0- og Handelsret) er frá 2. september 1999 í sameinuðum málum H-0003-97 og H- 0069-97 (FDE 1999:1766). 273
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.