Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Page 85
þeir geti myndað sér skoðun á virði bréfanna. Fjárfestar eiga ekki að þurfa að
leita annað til að fá fullnægjandi upplýsingar.
Til þess að tryggja að skráningarlýsingar séu sem best úr garði gerðar er
lögð rík skylda á stjórn félags, umsjónaraðila með skráningu og endurskoð-
endur að tryggja eftir bestu getu að skráningarlýsingin uppfylli ofangreint
nrarkmið. Reynist efni skráningarlýsingar rangt eða villandi er hætta á að til
bótaábyrgðar komi. Almennt má gera ráð fyrir að beitt verði ströngu mati við
ákvörðun sakar. Til þess að tryggja sem best að nauðsynlegar upplýsingar komi
fram og með tilliti til stöðu stjómarmanna og umsjónaraðila er þessum aðilum
ráðlagt að fá sérfræðinga til þess að framkvæma áreiðanleikakönnun á útgef-
anda áður en skráningarlýsing er gefin út.
Við ákvörðun orsakatengsla og fjárhæðar tjóns vakna ýmis álitaefni. Stafa
þau fyrst og fremst af þeirri staðreynd að fjölmargir þættir hafa áhrif á verð
bréfa sem skráð eru í kauphöll. Oft er staðan sú að ekki er með neinni vissu
hægt að fullyrða að rangar eða villandi upplýsingar hafi leitt til verðbreytinga á
bréfum, heldur er einungis unnt að leiða að því ákveðnar líkur. A þetta einkum
við þegar nokkur tími líður frá útgáfu skráningarlýsingar þar til verðbreyt-
ingarnar verða. Gera má ráð fyrir að við þær kringumstæður, þar sem sök liggur
fyrir og útilokað er að færa óyggjandi sönnur fyrir orsakatengslum eða fjárhæð
tjóns, verði slakað nokkuð á kröfum um sönnun. í þeim tilvikum þegar fyrir
liggur að tjón hefur átt sér stað vegna ófullnægjandi skráningarlýsingar, en
mikill vafi er uppi um fjárhæð tjóns, má gera ráð fyrir að tjónið verði metið að
álitum.
Kauphallarstarfsemi á íslandi er rétt byrjuð að slíta barnsskónum. Allnokkur
álitaefni hafa komið fram hjá Kauphöll Islands við túlkun á reglunum sem um
þessa starfsemi gilda. Efni þeirra ákvarðana er hins vegar ekki aðgengilegt
umfram það sem ráða má af almennum fréttum. Nauðsynlegt er að kauphallir
verði skyldaðar til þess að birta ákvarðnir sínar með einhverjum hætti til leið-
beiningar fyrir aðila sem starfa á þessum markaði. Enn er nánast enga dóma-
framkvæmd að finna á íslandi sem horfir til skýringar á kauphallareglum. Af
þessum sökum er oft á tíðum erfitt að spá fyrir um það hveming reglur verða
túlkaðar.81
81 Skoðanir sem fram koma í greininni um túlkun lagagreina eru alfarið höfundar og þurfa ekki að
endurspegla viðhorf Eftirlitsstofnunar EFTA.
279