Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 31

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 31
takmörkuð með vísan til reglna um sennilega afleiðingu, án þess að unnt sé að segja, að afleiðing sé fjarlæg eða óvenjuleg, eða á skorti að hætta á því tiltekna tjóni hafi verið aukin við hina saknæmu háttsemi. Nefna má tvo gamla íslenzka dóma sem dæmi um þetta: H 1934 836 Togari sigldi á vélbát úti fyrir Austfjörðum. í bótamáli útgerðar og vátryggjanda vélbátsins var fallizt á bótaskyldu togaraeigandans. Dæmdar voru bætur fyrir missi báts og veiðarfæra og lausra muna í bátnum. Þá voru dæmdar bætur fyrir missi launa og glataðra muna skipverja á bátnum, þ.e. bátsmanna, skipstjóra og háseta. Á hinn bóginn var því hafnað að dæma bætur vegna tjóns, er fólst í launagreiðslum til tveggja landmanna og hlut, sem félli í þeirra skaut. Var það rökstutt svo, að óút- reiknanlegt væri, er slík slys bæri að höndum, hvaða hagsmunir og hverra manna hagsmunir í landi annarra en útgerðarmanna, eigenda og vátryggjenda kunni að vera tengdir við skip. Skylda til að bæta tjón á sltkum hagsmunum „myndi verða of víð- tæk og með öllu ófyrirsjáanleg og óyfirsjáanleg". Tekið skal fram, að landmenn í þeirri merkingu, sem fram kemur í dóminum, höfðu sömu stöðu og skipverjar, þ.e. rétt til launa og aflahlutar og töldust til áhafnar báta. H 1936 243 I þessu máli lézt drengur nokkur, er skorsteinn, er verið var að flytja á vörubílspalli, valt af pallinum og yfir drenginn. Talið var að eigandi bifreiðarinnar bæri ábyrgð á slysinu. I bótamáli, sem faðir drengsins höfðaði, var bifreiðareigandinn dæmdur til að greiða bætur vegna útfararkostnaðar og kostnaðar við leiði á gröf drengsins. Á hinn bóginn var sýknað af kröfu um bætur fyrir vinnutekjutap föður drengsins, vegna þess að hann þurfti að vera hjá móður hans, er fékk andlegt áfall við slysið. Var það rökstutt svo, að rétturinn teldi, að þetta tjón væri „ekki nógu eðlileg né bein (adækvat) afleiðing slyssins“ til að hægt væri að krefjast bóta úr hendi bifreiðareig- andans gegn andmælum hans. Ymsir dóntar eru til, þar sem dæmdar eru bætur, þótt ætla megi, að fæstir telji afleiðingar hinnar bótaskyldu háttsemi sennilegar. Sem dæmi um þetta má nefna: UfR 1974, bls. 967 Kona nokkur á miðjum aldri, K, lenti í maí 1970 í umferðarslysi, sem eigandi bifreiðarinnar bar ábyrgð á. K slasaðist alvarlega, hlaut m.a. heilaskaða, sem leiddi til þess að varanleg örorka hennar var talin 100%. í desember 1972, þ.e. um tveimur og hálfu ári eftir slysið, lézt K af brunasárum. Þau hlaut hún fjórtán dögum áður þannig, að hún kveikti sér í vindlingi, er hún var að bursta skó, en við það notaði hún cellulósaþynni. Varð af bál, er eldur komst í þynninn og gufur er stigu upp af honum. I bótamáli, þar sem uppi voru kröfur vegna andláts hennar, var m.a. deilt um það, hvort um væri að ræða sennilegar afleiðingar þeirrar háttsemi, er leiddi til umferðar- óhappsins. Talið var í dómi Eystri Landsréttar, að þessar afleiðingar umferðar- 335
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.