Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 55

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 55
vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfir- manna eða eðli máls. Þá er tekið fram að þagnarskylda haldist þótt látið sé af starfi. I yfir 80 lögum og enn fleiri reglugerðum má síðan finna ákvæði um þagnarskyldu ákveðinna starfsmanna eða starfstétta sem í flestum tilvikum staðfesta einungis efnislega það sem felst í fyrmefndri 18. gr. laga nr. 70/1996. Gallinn við 18. gr. laga nr. 70/1996 er sá að í ákvæðinu felst vísiregla sem flókið er að beita þar sem reglan getur ekki um þær upplýsingar sem þagnarskylda á að ríkja um. Reglan getur heldur ekki um þá hagsmuni sem vemda á með trúnaði. Af þeim sökum getur oft leikið mikill vafi á því til hvaða upplýsinga ákvæðið tekur. Fyrir nokkrum árum glímdu bæði Norðmenn og Danir við sambærilegan vanda. Ur honum var leyst bæði í Noregi og Danmörku með því að setja sérstakan kafla í stjórnsýslulög ríkjanna um þagnarskyldu. Þar voru ákvæðin nánar útfærð þannig að skýrara varð til hvaða upplýsinga þagnarskylda tók. Um leið voru felld úr lögum og reglugerðum fjöldamörg ófullkomin ákvæði um þagnarskyldu. Með þessu fékkst í senn samræming og einföldun á gildandi reglum auk þess sem nýju reglumar voru gerðar mun skýrari. I Danmörku voru um leið gerðar breytingar á ákvæði því er varðar refsiverð brot á þagnarskyldu opinberra starfsmanna. Akvæðin voru gerð skýrari og auk þess látin taka til þriðja manns, sem ekki telst hlutdeildarmaður í þagnarskyldubroti opinbers starfsmanns, en notfærir sér upplýsingar fengnar með slíku broti eða miðlar þeim með óréttmætum hætti til annarra. Nefnd forsætisráðherra taldi samkvæmt framangreindu þörf á að afmarka nánar hugtakið opinber starfsmaður í XIV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (hgl. hér eftir) „þannig að skilgreining þess hóps opinberra starfs- manna sem þessi ákvæði tækju til [yrði] skýrari“. Þá taldi nefndin að athuga þyrfti „einstök ákvæði [XIV. kafla hgl.] með hliðsjón af þeim verndarhags- munum sem að baki þeim búa og greina hvort þörf [væri] á endurbótum með þarfir nútímasamfélags í huga“. í dæmaskyni vísar nefndin m.a. til reglna um þagnarskyldu opinberra starfsmanna. Að því er varðar fyrra atriðið hefur höf- undur þessarar greinar á öðrum vettvangi fjallað um skýringu á hugtakinu opinber starfsmaður og hvort og þá með hvaða hætti gera þurfi breytingar á framsetningu þess í ákvæðum XIV. kafla hgl.3 * * * Verður því ekki nánar fjallað um það atriði hér. í þessari grein verður aftur á móti leitast við að gera grein fyrir öðrum efnisatriðum í verknaðarlýsingum XIV. kafla hgl. og gerð tilraun til að skýra efni þeirra með vísan til orðalags, lögskýringargagna og dóma. Þá verður ef ástæða þykir til tekin afstaða til þess hvort og þá hvaða breytinga sé þörf á einstökum ákvæðum kaflans með tilliti til þeirra sjónarmiða sem nefnd forsætisráðherra taldi að ætti að vera ráðandi við slíka athugun. Loks verða niðurstöður dregnar saman. 3 Sjá Róbert R. Spanó: „Lagareglur um refsiábyrgð opinberra starfsmanna11. Úlfljótur. 4. tbl. 52. árg. (2000), bls. 511-529. Það skal tekið fram að ekki verður fjallað sérstaklega í þessari ritgerð um refsiákvarðanir dómstóla í tilefni af brotum er varða við ákvæði XIV. kafla hgl. um brot í opinberu starfi. 359
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.