Búnaðarrit - 01.01.1908, Blaðsíða 183
BÚNAÐARRIT.
179
félaga, sem um getur í síðustu skýrslu, talsvert þróast
á árinu.
„Nautræktarfélögin “ standa allvel, og fer heldur
fram, og eitt nýtt hefir verið stofnað á árinu í Vopna-
firði og annað mun vera í undirbúningi í Fijótsdal.
„Hrossaræktarfólag" var stofnað vorið 1907 fyrir
Fljótsdalshórað og eru í því flestir hreppar Hóraðsins.
Stjórn Búnaðarsambandsins beittist fyrir stofnuninni, en
nú er féJagið sjálfstætt. félag með sínum lögum og sinni
stjórn. Það keypti síðastl. vor, þegar eftir að það var
stofnað, 2 kynbótahesta, hefli' fengið styrk til þeirra
kaupa, svo og til folagirðingar, frá Búnaðarfélagi íslands,
200-|-300 kr., og virðist vera komið á góðan rekspöl
og Jíklegt til nytsemdar í þeirri grein búpeningsræktar-
innar.
„Kynbótabú fyrir sauðfé" var ákveðið að stofna á
Hreiðarsstöðum í Feilum, hjá Jóni bónda Stefánssyni,
sem var sá eini, er gaf kost á sér tiJ að taka þá stofn-
un að sér, þrátt fyrir ítrekaðar málaleitanir frá Sam-
bandsins hlið við ýmsa menn, er líklegir þóttu, innan
og utan FJjótsdalshéraðs. Var útvegaður styrkur til
búsins frá sýslusjóðum MúlasýsJnanna, fyrir milligöngu
Sambandsins, 50 kr. frá hvorum, og Búnaðarfélag ís-
lands veitti þegar síðastl. vor 200 kr. Búið á að taka
til starfa vorið 1908, og nú, þegar þetta er skrifað, mun
stofninn innkeyptur að mestu leyti.
Fjárhirðingarverðlaun. Því nýmæli aðalfundar
Búnaðarsambandsins 1906 var vel tekið, og notuðu það
7 hreppar þegar á fyrsta ári. Hélt þvi aðalfundur 1907
áfram í sömu st.efnu og hækkaði jafnframt tillag Sam-
handsins í 15 kr. móts viðjafna upphæð úr hreppssjóði.
Rótt spor og vænlegt til góðs.
Stœrri jarðabœtur hefir verið lítið um á þessu ári.
Til félagsgirðingar, um 8 jarðir í Fellum, veitti Búnað-
arfélag íslands 200 kr. styrk, eftir meðmælum Sam-
handsins. En ekki or enn byrjað á þeirri girðingu.
12'