Búnaðarrit - 01.01.1908, Blaðsíða 189
BÚNAÐARRIT.
185
skapar hafði verið formaður þess, enda aðal*frumkvöðull
þess, að það var stofnað. Hafði hann óskað lausnar úr
stjórninni sakir vanheilsu, og tók aðalfundur 1907 þá
ósk til greina og þakkaði honum jafnframt í einu hljóði
fyrir störf hans og framkvæmdir í þarfir Sambandsins.
Stjórn Sambandsins er, sem stendur, þannig skipuð:
Síra Magnús Bl. Jónsson í Yallanesi, formaður,
Gunnar óðalsbóndi Pálsson dbrm. á Ketilsstöðum, ritari,
Björn bóndi Hallsson á Rangá, gjaldkeri,
og varastjórn:
Jón óðalsbóndi Bergsson dbrm. á Egilsstöðum, formaður,
Jónas óðalsbóndi Eiríksson dbrm. á Breiðavaði, ritari,
Sigfús bóndi Halldórsson á Sandbrekku, gjaldkeri.
Það verða væntanlega skiftar skoðanir um það,
hversu mikil eða markverð störf Búnaðarsambandsins
eru. En hvað sem um það má segja, þá er hitt víst,
að það hefir orðið til að hrinda ýmsu því af stað, bein-
hnis eða óbeinlínis, sem í nytsemdaráttina horfir fyrir
landbúnaðinn hér austan lands, og sem áður var lítt
eða ekki þekt, nema þá helzt sem ómar úr fjarlægð.
Það er ólíku hægra fyrir þá, sem eitthvað vilja í áttina
áfram, að snúa sér til innanfjórðungsfélags, en að sækja
hvert ráð eða tilsögn til eins allsherjar landbúnaðar-
félags, enda ómögulegt fyrir það við öllu að snúast,
sínu aðkallinu úr hverri áttinni, og þar ekki sá kunnug-
leiki á lands- og búnaðarháttum, sem fjórðungsfélögin
eiga að hafa. Þetta sá og skildi Búnaðarfélag Islands,
enda studdi með ráði og dáð stofnun Búnaðarsambands-
ins og hefir jafnan tekið vel og lipurlega málaleitunum
frá þess hálfu.
Ýmsir spyrja: Ilvað er Búnaðarsambandið, hvert
er hlutverk þess, hvað gjörir það ? Það lætur lítið til
sín heyra. Búnaðarsambandið er félag búnaðarfélaga,
þ. e. aðalmeðlimir þess eru búnaðarfélög hreppanna í
Austfirðingafjórðungi og aukameðlimir einstakir menn,