Búnaðarrit - 01.01.1908, Blaðsíða 206
202
BÚNAÐARRIT.
ann garð undan Vindborði, eða með því að hlaða fyrir
þau, þar sem þau renna inn á engjarnar, og þyrfti sá
garður að vera töluvert langur en ekki hár. Ennfrem-
ur leit eg eftir, hvort ná mætti vatni úr Holtakíl til
áveitu; ætla 5 bændur að nota vatnið í samlögum, það
er að segja, að hafa sama aðfærsluskurð. Þarf sá skurð-
ur að vera æði langur, en ekki mjög'djúpur og tel eg
torfærulaust að vinna verkið. Bað eg hvorutveggju
hlutaðeigendur að skrifa Búnaðarsambandinu í vetur um
þetta, — svo að starfsmaður þess geti búið sig út með
mælingarverkfæri næst, þegar hann fer þar um, — og
gefa upplýsingar, einkum um það, hversu mikils ávinn-
ings þeir væntu af verkunum, ef þau yrðu framkvæmd
og kæmu að tilætluðum notum.
Kynbótafélög voru Mýramenn fúsir að stofna fyrir
allan búpening. í haust ætla þeir að velja ungan grað-
fola og hafa folalaust í 2 ár, því að stóðið þykir, sem
er, orðið of margt. Þá ætla einnig nokkrir bændur að
kaupa í haust 12 fallegustu ærnar, sem kostur er á í
sveitinni og skal sá félagsmaður, sem fallegastan á hrút-
inn, fóðra ærnar, gegn því, að hinir fóðri fyrir hann
jafnmörg lömb. Þykir ærin þá fuilvel fóðruð, ef hún
fær lambsfóður.
I Nesjum mættu svo fáir, að ekki varð af fundi
og kváðu þeir þó vera fundsæknir og félagslyndir Nesja-
menn, enda hafa þeir 2 málfundafélög og nýtt og mynd-
arlegt samkomuhús. En þerrir var hinn bezti um dag-
inn, svo að flestir létu heyannir sitja fyrir öðrum störf-
um. Um Nesin var ferðinni aðallega heitið, til þess, að
iíta eftir skilyrðunum fyrir stoínun íjómabús og leitast
við að koma því á stofn, ef skilyrði væru fyrir því, að
það gæti þrifist. Málið heflr verið rætt á fundum áður
og voru allir þeir, er eg átti tal við um máiið, sam-
mála um það, að ómögulegt væri að stofna þar rjóma-
bú á meðan samgöngurnar eru eins og þær eru nú, og
vonuðu þeir, að þingið gerði bráða bót á þessu, svo að