Búnaðarrit - 01.08.1916, Blaðsíða 3
BÚNAÐARRIT.
Votheysgerð.
Eftir Halldór skólastjóra Vilhjálmsson á Hvanneyri.
Hvað veldur? Hví hykið þið bændur að búa til
volhey? Er ekki þörfin nógu knýjandi? Jú. Er það þá
svo mikill vandi? Og sussu nei. Eða kunnið þið það ekki?
Nóg er til af góðum ritgerðum, sem vel má fara eftir.
Má þar nefna: „Um súrhey", eftir Torfa Bjarnason, í
Andvara 1884, og síðar í Búnaðarritinu 2. árg. ritgerð
eftir Árna Thorsteinsson 1887, ritgerð eftir Eggert Pinns-
son á Meðalfelli í 16. árg. Búnaðarritsins og margar
smágreinar í „Frey“ og víðar. Þar að auki hafa nokkrir
menn árlega nú um lengri tíma búið til vothey, hvernig
sem viðrað hefir; frá reynslu þeirra segir í Búnaðarritinu
26. árg. bls. 214. Mundu þeir allir fúsiega leiðbeina, of
þess væri óskað. PJn hvað er það þá? Þrátt fyrir alt
hlýtur það að vera þehhingarleysi, sem dregur á eftir
sér framkvœmdarleysið.
Eg ræðst því í að reyna að skrifa stutta ritgerð
um þetta mikilvæga málefni, ef einhver kynni að hafa
gagn af henni, og ef einhver kynni frekara að byrja á
votheysgerðinni.
Sagnn. Votheysgerðin er æfagömul heyverkunar-
aðferð, þó hún sé fyrst nú að ryðja sér til
rúms. Þannig má víða finna giyfjur i Algier og viðar í
N.-Afríku, sem Rómverjar súrsuðu í skepnufóður. í
11