Búnaðarrit - 01.08.1916, Blaðsíða 32
190
BÚNAÐARRIT
1:4:7. — Af þessu má sjá, að víðu, en tiltölulega
lægri gryfjurnar verða ódýrari og okkur oft þægilegri í
notkun.
Illiðar- Gryfjan verður að þola samdrátt og þenslu,
þrystingur. sem orsakast af vætu, hita og kulda, og
standi hún hátt upp úr jörðu, verður hún
að þola rok og hristing (landskjálfta). En auk þessa,
verður hún að þola hliðarþrýstinginn, sem er allmikill
meðan heyið er að síga (sbr. vökva, högl og aðra auð-
hreyfilega líkami, sem þrýsta jafnt í allar áttir undan
átaki). Á fullsignu votheyi er enginn hliðarþrýstingur,
að eins botnþrýstingur (sbr. fasta líkami). Þessi hliðar-
þrýstingur, sem veggirnir þurfa að standa á móti, fer
jafnt vaxandi með gryfjudýptinni, þ. e. a. s. votheys-
stabbanum, og farginu, sem á honum hvílir; er hann
talinn að vera 11 pd. á hvert ferfet í vegg fyrir 1 fet
'í hæð. Votheysstabbi, sem er 12' á hæð, þrýstir því á
hvert ferfet neðst í hliðarvegg gryfjunnar með 11X12=
132 pd. hliðarafli; stabbi 20' á hæð 11X20=220 pd. á
hvert ferfet,
Af þessu sjáum við, að veggirnir þurfa að vera því
sterkari, því hærri sem þeir eru, en það er fjórða aðal-
boðorð Ameríkumanna, að hafa veggina vel sterlca.
Styrkja Til styrktar veggjunum er talið ágætt að
vegg-inn. snúa saman 2 eða íleiri strengi af síma-
vír nr. 9 og leggja í steypuna 2 þuml.
írá ytri brún. Mætti vafalaust nota til þess venjulegan
sléttan vír, eða jafnvel enn betur gaddavír, sem mundi
bíta sig vel fastan í steypuna. Séu gryfjurnar 20 feta
háar eða hærri, þarf lóðrétt járnbönd, og eru þau fest
við láréttu vírböndin. í lóðróttu teinana eru 3 feta langir
s/s" stálbútar, sivalir, taldir mjög góðir. Er þeim krækt
saman jafnóðum og mótin eru færð.