Búnaðarrit - 01.08.1916, Blaðsíða 68
226
BÚNAÐARRIT
Mælingar íyrir áveitu. Sigurður búfræðingur
Sigurðsson mældi fyrir áveilum allvíða og sá sjálfur um
framkvæmd verksins á einum stað. Um þau störf hans
má vísa til skýrslu hans, sem prentuð mun verða í
Búnaðarritinu.
Upp í kostnað við mælingu á Staðavbygðarmýrum
í Eyjafirði, sem Páll kennari Jónsson gerði, greiddi fé-
lagið 300 kr., nálægt helmingi kostnaðar.
Upp í kostnað við mælingarnar á Miklavatnsmýri,
sem getið er um í aðalfundarskýrslunni í fyrra, greiddi
félagið á árinu kr. 547.83. Á þá félagið ógreiddar
kr. 2380.05 af þeim alt að 6000 króna styrk, sem
það hafði heitið t.il þeirrar áveitu. Þær eftirstöðvar
munu verða greiddar á þessu ári, því að nú hefir verið
ráðin endurbót hennar í sumar, undir forsögn Jóns lands-
verkfræðings Þorlákssonar, með því fé, sem til hennar
er yeitt í fjárlögunum, styrknum frá búnaðarfélaginu og
tillagi frá Árnessýslu af leifum Jánsins, sem sýslan tók
til áveitunnar. Tveir menn eystra hafa tekið að sér
framkvæmd aðalverksins fyrir tiltekið verð.
Til annara áveitufyrirtækja var veittur
1453 króna styrkur. Það voru 300 kr. til áveitumylnu
á Hellulandi í Skagafirði — skýrsla um hana er í
Ársriti Ræktunarfélags Norðurlands — 100 kr. til áveitu
á Grenjaðarstað, 100 kr. til áveitu í Teigi í Dalasýslu,
140 kr. til áveitu á Brúsastaðamýri í Þingvallasveit,
313 kr. til stíflu í Reykjadalsá í Þingeyjarsýslu og 500 kr.
til stíflu í Jjaxá til áveitu úr Mývatni. Styrkurinn hefir
verið nálægt fimtungi kostnaðar.
Til varnar gegn vatnságangi var veittur
710 kr. styrkur: Til að varna landbroti af Fitjaá hjá
Efstabæ í Skorradal 150 kr., til íyrirhleðslu við Þverá
á Dufþekjubökkum 200 kr., til fyrirhleðslu við Hailgeirs-
eyjarfljót í Landeyjum 170 kr. og tii fyrirhleðslu í Há-
bæjarhverfi í Þykkvabæ 190 kr. Styrkurinn hefir numið
um það bil fimtungi kostnaðar.