Búnaðarrit - 01.08.1916, Blaðsíða 93
BÚNaÐARRIT
251
Og þegar þú ert búinn að reyna sjálfur að geía
cúr hlöðunum þínum á vetrum, segðu mér þá, hvort þú
átt ekki hægra með að hirða fleira fé og kýr og hross
en áður, og um leið hvort þú iðrast eftir að hafa komið
þér upp heyhlöðum.
En umfram allt, gerðu þær vandaðar, svo þær
endist vel.
Garðyrkj ukenslan
í Gfróðrarstöðinni í lleybjavík 1915.
Garðyrkjukenslan fór fram á venjulegum tíma,
1. maí til'miðs júní. Hinn nýi garðfræðingur Ragnar Ás-
geirsson aðstoðaði við kensluna. Nemendur unnu 8 tíma
á dag til jafnaðar og fengu venjulega eins tíma munn-
lega tilsögn á dag.
Aðsóknin var svipuð eins og síðustu árin undan-
farin; rúmir 40 sóttu, en 16 var veittur aðgangur; af
þeim komu að eins 10. Sumir forfölluðust vegna veik-
inda, aðrir komu ekki vegna fréttanna um hafísinn.
l>essir sóttu kensluna:
1. Guðríður Guðmundsdóttir, Hafnarfirði.
2. Guðrún Jónsdóttir frá Skál á Siðu, V.-Skaftafellss.
3. Gunnar Þórðarson frá Laugarbóli, ísafjarðarsýslu.
4. Hjaltlína Guðjónsdóttir, Sæbóli, ísafjarðarsýslu.
■5. Halldóra Pétursdóttir, Núpi, Rangárvallasýslu.
6. Halldór Jónsson, Tröllatungu, Strandasýslu.
7. Katrín Vigfúsdóttir, Brúnum, Rangárvallasýslu.
8. Kristín Vigfúsdóttir, Gullberastöðum, Borgarfj.sýslu.
9. Ólafur Þ. Thorlacius, Saurbæ, Barðastrandarsýslu.
10. Sigurður Lýðsson, Skriðnesenni, Strandasýslu.