Búnaðarrit - 01.08.1916, Blaðsíða 66
224
BÚNAÐARRIT
nauðsynlegustu framfara-atriðin, ekki kljúfa í sundur,
kikna og káka, heldur láta hin biða þangað til atlagan
kemur að þeim. Vandinn er að velja og velja rétt. Vænti
eg þess, að valið félli bráðlega á votheysverkunina, því hún er:
1. Stórmentandi, dregur Ur harðindahættu og eykur
fóðurforða landsins, og það einkum einmitt þegar
verst lætur og þörfln er mest.
2. HUn er nauðsynleg, til þess að draga Ur of mikilli
þurfóðurgjöf.
3. Vothey má verka, livernlg sem viðrar, sparar
feikna-fyrirhöfn og vinnu í óþurkatíð.
4. Vothey má bUa til Ur alls konar nýsleguu grasi
og grænfóðri.
5. Við votheysgerð í'ýrna næringarefnin minna en
oftast á sér stað við aðrar heyverkunaraðferðir.
6. Vothey þarf minna og getur komist af með ódýrara
hUsrUm en þurhey.
7. Af ofantöldu er því votheysgerð auðsjáanlega ódýr
heyverkunaraðferð.
8. Vothey er safamikið, holt, lystugt og auðmelt fóður.
9. Vothey bætir injólk og smjör og sennilega eykur
það lika.
10. Vothey virðist vera einkar-gott með beit, bæði
handa sauðfé og hestum.
11. Vothey reynist vel gegn heysýki í hestum.
12. Að vot.heysverkun ættu því allir árlega að vinna,
sem talsverða grasnyt hafa hér á landi.
Minnisvnrdinn. Bóndi! Veglegastan og skynsamlegastan
minnisvarða reisir þU þér með því, að
byggja vandaða og góða votheystóft. Hann er bUinn að
margborga sig, áður en þU deyr, og hann þarf enga
áletrun. Minnisvarðinn skýrir bezt frá því sjálfur, að þií
hafir verið skynsamur, framtakssamur og forsjáll og viljað
skepnum þínum, sjálfum þér og afkomendum þínum vel,
að þU hafir verið bústólpi og bú þitt landstólpi.