Búnaðarrit - 01.08.1916, Blaðsíða 100
V innuhi úa ver ðlaun 1917.
Umsóknarfrestur um þau er til febrúarloka það ár.
Þeir sem sóttu um verðlaun 1916, en fengu þau ekki
þá, og óska að fá þau 1917, verða að sækja að nýju.
Umsóknum þurfa að fylgja prestsvottorð um aldur
hjúanna, vistarár og vistarstaði, og vottorð húsbænda
um að hjúin hafi verið vel vinnandi og dugleg, dygg,
iðin, sparsöm og dagfarsgóð.
Umsóknir mega vera hvort sem vill frá hjúunum
sjálfum eða húsbændum þeirra.
Mjólkurskólinn á Hyítárvöllum.
Kensluskeiðið næsta, 1916—1917, stendur yfir frá
15. okt. til 14. maí. Námsmeyjar fá meðal annars
nokkra tilsögn í heilsufræði og um efnasamsetningu og
gildi matvæla, einnig nokkra verklega æfingu í að búa
til algengan mat, eftir því sem ástæður leyfa. Fyrir
fæði greiða þær 20 kr. um mánuðinn. Þær sem nokkuð
langt eru að fá ferðastyrk. Umsóknir sé sendar Bún-
aðarfélagi Íslands, og þarf þeim að fylgja læknisvottorð
um heilsufar.
IVtimsfelieiö fyrir eftirlitsmenn
nautgriparæktarfélaga verður haldið í Reykjavik 1. nóv.
til 15. des. 1916. Meðal annars verður þar veitt tilsögn
í að gera berklaveikisrannsóknir á kúm og að bólusetja
sauðfé við bráðapest. Nemendur fá 30 króna námsstyrk,
og þeir sem nokkuð langt eru að fá ferðastyrk að auki,
ef þeir eru ráðnir eftirlitsmenn hjá nautgriparæktarfélagi
í samráði við Búnaðarfélag íslands. Umsóknir sé sendar
búnaðarfélaginu.