Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 4

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 4
162 BÚNAÐARRIT Palestínu og austur um alla Asíu hafa hjarðmenn súrsað fóður frá ómunatíð, og þegar Márar brutust yfir til Spánar frá Afríku, fluttu þeir með sér votheysgerðina. í N.-Evrópu er þess líka getið, að menn hafi um langan aldur súrsað kál og rófur, og jafnvel hafi Prússar súrsað gras á sama hátt. Það var þó ekki fyr en um miðja síðast.liðna öld, að farið var að veita aðferð þessari eftirtekt, og var það franskur maður, L. Doyere, sem fyrstur reið á vaðið og kom með aðferðina frá Spáni. Á sama tíma var uppi í Austurríki maður nokkur, Klapmeier að nafni. Varð hann frægur um eitt skeið fyrir sérstaka heyverkunaraðferð, sem kend var við hann og kölluð er nú ornunaraðferðin eða heyverkun Klapmeiers. Hefir Þórður iæknir á Kleppi lýst henni að nokkru í „Ingólfi" fyrir 2 árum síðan, en nú er hún mjög lítið notuð. Þá kemur til sögunnar hinn svonefndi faðir votheys- gerðarinnar, franskur bóndi, Auguste Gofifort. Bygði hann tilraunir sinar á tilraunum þessara tveggja manna. Full- komnaði hann tilraunir þeirra svo, að i kringum 1870 gat hann skýi t frá grundvallaratriðum votheysgerðarinnar, sem enn þann dag í dag standa óhögguð: Loft- og iagarheldar gryfjur, og fergja sem mest af loftinu úr fóðrinu. Þessi kenning Gofforts barst nú víða um lönd, en hvergi var henni jafnvel tekið sem í N.-Ameríku. Þótt- ust, bændur þar hafa himin höndum tekið, og lærðu Evrópumenn hana á ný af Ameríkumönnum. Það mun hafa verið í ki ingum 1880, er menn fóru fyrst að súrsa hey hér á landi, og hefi eg fyrsta heyrt nefnda Kristin og Brynjólf, bændur í Engey, er súrsuðu hey. kál og arfa „í tveim stórum ámum“. Sennilega hafa íleiri menn reynt það um svipað leyti, þó ekki hafi eg heyit menn nafngreinda, en 1882 reyndi Gísli bóndi Sigurðsson á Fossi í Hrútafirði votheysgerð, og heppnaðist

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.