Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 19

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 19
BÚNAÐARRIT 177 teningsalin a£ venjulegu útheyi ekki meira en 70—80 pd. að jafnaði og jafnvel minna, alt ofan í 60—70 pd. Magnús bóndi Þorláksson á Blikastöðum hefir sagt mér, að hann eigi hlöðu, er rúmi 530 teningsálnir, og sé vegghæðin b1/* alin. Segist hann ómögulega koma t>ar fyrir meiru en 160—170 hestum, 100 kg., af sinu- lausu, þuru mýrarheyi, en það er sama sem 60—64 pd. hver teningsalin af signu og margtroðnu heyi. Töðuhlöðu á hann líka, sem er 730 teningsálnir og vegghæðin 5V+ alin. Tekur hún um 310 hesta, 100 kg., en það er sama sem 85 pd. hver teningsalin. Þetta at- riði þyrftu bændur annars að athuga alment, því það er eitt aðal-grundvallaratriði undir forðagæzlu, sem sumir eru nú farnir að fárast um, en eg tel mjög mikilsverða, ef vel og röggsamlega er gerð. Teningsalin af votheyi höfum við vegið hér, og reynist hún um 400 pd., eða teningsfetið um 50 pd. af há. Af útheyi er teningsfetið talsvert léttara, eða frá 30 pd. (mýrarhey) og upp í 45 pd. (flóðengjahey) eftir fargi, vatnsmagni og heygæðum. Eftir þessu vil eg því álita, að í hverri teningsalin af votheyi og þurheyi séu svona mörg pd. af grænu ó- hröktu þurheyi, þegar vegghæðin er 5—6 álnir: Y o t h e y : Bezta úthey og taða 20 pd. Meðal-úthey .... 95 — Lélegt úthey .... 75 — Þurhey : 80—90 pd. 70-80 — 60—70 — Mismunur °/o 30 20 13 Komi það í ljós við frekari rannsóknir, að þessar tölur séu nærri sanni, má hæglega af þeim reikna hlöðu- rúm fyrir hverjar 100 töðueiningar, en það er okkar grundvallar-fóðureining. Björn Lárusson trésmiður hefir gert fyrir mig kostnaðaráætlun yfir heyhlöðu, sem er 15X8 álnir að innan og steinsteyptir veggir 5V2 alin á hæð. Vegg- þykt er 9" að neðan og 7" að ofan. Þak járn á langböndum. . 12

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.