Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 21

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 21
BÚNAÐARRIT 179 fyrir hver 100 kg. Eftir er þó sá sparnaður, að nálega 20% meira kemst af þurru heyi í hverja rúmeiningu í votheyi eti þurheyi. Gryfjan. Þá erum við nú vonandi orðnir sannfærðir um, að nauðsynlegt sé að búa til vothey, og er þá að byrja á gryfjunni. Ekki verður hér ritað um, hvernig byggja skuli hinar einstöku gryfjur, er höfundurinn ekki nógu fær til þess, iieldur mun reynt að benda á lögun og stærð þeirra, og verður þá mest farið eftir gripafjölda og gjafatima, -en lögunin sniðin eftir sílóum Ameríkumanna, er nú þykja beztar votheystóftir. Legan. Fyrst er þá að ákveða, hvar gryfjan skuli standa, en jafnframt þarf að ákveða, hvar byggja skuli gryfjuna. Ilér verður aðaliega átt við stein- steyptar gryfjur. Þarf því grundvöllurinn að vera fastur og öruggur og laus við vatnsuppgang. Aftur gæti verið hentugt að leiða mætti vatn að gryfjunni, ef væta þyrfti fóðrið í henni. Nú þarf gryfjan að standa sem næst gripahúsum og hlöðu vegna fóðurflutnings, og sennilegt þykir mér, að margir muni vilja nota sama vegg í hlöðu og votheystóft. Er ekkert annað því til fyrirstöðu, en eg vil hafa tóftina hringmyndaða. En sökum þess, að eg tel lágmarkshæð gryfjunnar 12 fet, þar sem mögulegt er að koma því við vegna ílátningar, þarf að hafa gryfjuna í halla, þar sem auðvelt er að aka fóðri og fargi í hana og úr henni aftur. Enginn vafi er á því, að gott er að haía sem mestan hluta gryfjunnar í j'óröu. Er það vegna skjólsins. Verða rekjur þá minni. Þetta má glögt sjá á gryfjunni hér á Ilvanneyri. Miklu minni rekjur við jarðvegg en loftvegg. Þó væri gott vegna úrtekningar að hafa litlar dyr á neðri vegg. Væri ekki frágangssök, þó grafa þyrfti stuttan gang inn í brekkuna, en þá þyrfti vitanlega að

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.