Búnaðarrit - 01.08.1916, Blaðsíða 22
180
BTJNAÐARRIT
refta yfir og hafa hurð fyrir að utan, svo ekki fenti inn.
í sama gang gæti lokræsi legið, þyrfti þess með. Þætti
jarðgöng og dyraumbúnaður frágangssök, mætti hafa
lyftiumbúnað þann, er síðar verður getið.
Ef við höfum nú gryfjuna þaklausa, sem eg mun
gera framvegis, er nauðsynlegt að hafa hana í skjóli fyrir
mestu regnáttinni, en þó einkum verjast aðfenni. Býzt
eg við, að það muni valda örðugleikum víða og gera
þakleysi nær ómögulegt, þó hér komi ekki að sök.
Því er nú ver og miður, að oft hafa hús og hlöðu-
stæði verið valin með alt of litilli fyrirhyggju. Má stund-
um sjá þá býsn, að gripahúsum og hlöðum hefir verið
skákað upp á háhóla og hæðir, þar sem ilt eða ómögu-
legt er að koma að vagnhlassi eða hesti.
E£ bóndi þarf að byggja hlöðu, og einkum ef pen-
ingshús eru á fallanda fæti, er sjálfsagt að velja hlöðu-
stæðið (votheystóftina) sem hyggilegast fyrir framtíðina,
þar sem rúm er fyrir sem mest af peningshúsum i kring.
Láta peningshús og safnþró elta hlöðuna, þegar upp eru
bygð. Þá þarf að taka tillit til, auk þess sem áður er
talið (iega, grundvöllur, heyflutningur, aðfenni, vatnsleiðsla),
áburðarflutnings út um túnið, hvar skemst sé og minst,
túnspjöll (girtur vegur) að reka gripi á beit, og hvar
styzt er að væntanlegri nýrækt.
Með vaxandi vinnufóikseklu og kauphækkun er það
ekki smáræðis sparnaðarliður, að koma peningshúsum
sinum svo haganlega fyrir með legu og góðum útbúnaði,
að sem fæsta þurfi við skepnuhirðingu. Þá er lika úr
meiru að velja og síður notaðir gallagripir.
Gryfjnstærdin. Undanfarna vetur hafa kýr hér étið 20—
24 pd. af votheyi á dag að meðaltali.
Hefir verið reynt að gefa kúnum eins mikið
og þær vildu éta, og hefir engin fengist til að éta meira
en 40 pd. á dag, og fáar svo mikið, enda er það hámarks-
J