Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 69

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 69
BÚNAÐARRIT 227 Til undirbúnings áveitutilrauna, í Miðey og í FJjótshólum, var varið 36 kr. Um undirbúning á Hólum í Hjaltadal, þar sem í ráði er að aðaltilraunirnar fari fram, er ekki komin skýrsla né reikningur. Til girðinga, annara en girðinga fyrir kynbóta- gripi, var veittur 1354 kr. styrkur : í Laugardal 415 kr., i Saurbæjarhreppi í Eyjafirði 500 kr., í Nesjum i Austur- Skaftafellssýslu 289 kr., á Efri Fljótum 1 Vestur-Skafta- fellssýslu 75 kr., og á Ölvaldsstöðum í Mýrasýslu 75 kr. Styrkurinn hefir verið um 3 au. á stiku. Öllum þcssum styrkjum hafði verið heitið fyrir árslok 1914. Frá því i ársbyrjun 1915 hefir af fjárhagsástæðum engum styrk verið heitið til girðinga, annara en fyrir kynbótagripi, og er búist við, að svo muni verða einnig framvegis. Til j ar ðy r k j uken sl u var varið 360 kr.: Á Ánabrekku, hjá Páli kennara Jónssyni, 240 kr., hér austanfjalls, undir umsjón Búnaðarsambands Suðurlauds, 120 kr. Styrkurinn var 40 kr. fyrir hvern nemanda, sem kenslunnar naut í 6 vikur og kennarinn að loknu námi gat vottað um, að væri vel fær til að fara með plóg og herfi. Um gróðrarstöðina í Reykjavík verður að vísa til skýrslu um hana, sem kemur í Búnaðarritinu. Þess skal getið, að af fé því, sem í reikningunum er talið hafa gengið til gróðrarstöðvarinnar, gengu 760 kr. til garðyrkjukenslunnar — skýrsla um hana kemur í Búnaðarritinu — og til sýnistöðvanna fjögra 100 kr. tíl hverrar. Til gróðrarstöðvarinnar sjálfrar gengu um 2500 kr. Arður af gróðrarstöðinni varð i fyrra óvenju- Jega mikill. Búfjárrœkt. Til hennar voru helztu fjárveitingar þær, sem nú skulu taldar: Nautgriparæktarfélög 25 fengu alls kr.4581.50. Þau gjöld félagsins aukast allmikið, er félögunum fjölgar. Þau eru nú orðin 30, og styrkurinn til þeirra þetta ár verður fullar 4800 kr. — Páll kennari Zóphóníasson hefir 15*

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.