Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 90

Búnaðarrit - 01.08.1916, Page 90
248 BÚNAÐARRIT vinnu, sem hann gæti hugsað sér, væri hún sú, að hann hefði húsfólk, sem tæki að sér vatnsburðinn yfir árið fyrir 26 kr. Það væri þá = 20°/o- En því bætti hann við, að ekki væri það nema tilviljun, að svo ódýr vinna fengist. Mér þykir það ails ekki liklegt. Heylilöður — Vanafesta. Þeir sem farnir eru að eldast hafa fæstir vanist heyhlöðum fram eftir æfinni, og flestir erum við vana- fastir. Það er líklega þess vegna, að menn hafa svo lengi getað sætt sig við hina vandræðalegu heygarða og leiðinlegu heytóftir, með öllum göllunum og kostn- aðinum, sem þeirri heygeymslu fylgir. Enn í dag er það þegjandi vottur um þessa vana- festu, að maður getur ferðast um heilar sveitir og jafnvel sveit úr sveit, án þess að sjá nema örfáar heyhlöður. Allir vita þó af þægindunum við að hirða hey inn í hlöður og eins við að gefa úr þeim. En — það er víst með þetta eins og vatnsveiturnar, að menn horfa svo mikið í kostnaðinn í upphafi — af því þeir gera sér ekki grein fyrir, hvað fæst í aðra hönd. Eg byrjaði á þvi, að gera heyhlöðu með torfvegg- jum og torfþaki, upprefta og sæmilega viðaða. Eftir fá ár sá eg að þessi hlaða var gallagripur, lak í miklum rigningum, veggirnir biluðu og viðirnir fúnuðu fljótt. Næstu hlöður gerði eg með háum grjótkjöllurum undir torfveggjum; þökin úr bárujárni og skúrmynduð. Yið þær var sá annmarki, að þökin hélaði mikið innan, og þegar er frost linaði, varð hélan að leka, svo að hey skemdist töluvert. Breytti eg þá enn til, gerði þær sperrureistar og þakti með torfi yflr járnið (tvö þök og myldaði á milli). Eina slíka hlöðu hefl eg enn, og sést óvíða ryðvottur á járninu eftir 18 ár. Þar er aldrei héla; er það því til stórbóta. Þó er sá galli á, að við-

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.