Búnaðarrit - 01.01.1925, Page 84
76
BUNAÐARRIT
Bústofmnn þyrfti svo að sjálfsögðu að auka á næstu
árum.
Rekstur tilraunabúsins.
Um rekstur tilraunabúsins höfum vjer eigi gert áætlun.
Hyggjum, að búið mundi geta borið kostnað þann, er
af stofnkostnaði og rekstri þess leiddi, að undanskildum
kostnaði þeim er leiddi af tilraununum. Hve sá kostn-
aður yrði mikill, fer eftir því, hve tilraunirnar yrðu
víðtækar. Ætla má, að til þess þyrfti 4—6000 krónur
fyrstu árin.
Hver á að reka tilraunabúið?
Yjer teljum sjálfsagt, að þetta tilraunabú verði rekið
á kostnað þess opinera, að ríkissjóður leggi fram fje, til
stofnunar og starfrækslu búsins, en Búnaðarfjelagi ís-
lands yrði falið að sjá um undirbúning og starfrækslu
búsins. Væntanlega myndi Landsbankinn vilja stybja að
stofnun tilraunabús með hagfeldum lánum.
Ef vilji og skilningur er á máli þessu hjá hlutaðeig-
endum, efumst vjer eigi um, að stofnun tilraunabúsins
geti komið til framkvæmda strax á næsta ári, og það
teljum vjer þýðingarmikið.
XI. Nýbýli á Skeiðunum.
Það hafa komið fram tillögur um, að nauðsyn bæri
til, að stofna nýbýli á áveitusvæðunum, til þess að betur
yrðu notfærðir hinir auknu framleiðslu-möguleikar. Það
heflr verið tilfært, að þeir, sem land eiga, geti sjer að
skaðlitlu selt land til nýbýla, og með því ljett sjer að
nokkru þá byrði, sem áveitan leggur þeim á herðar.
Þetta málefni er þess vert að það sje athugað. Hins-
vegar er lítil reynsla fengin um stofnun nýbýla, og því
eigi hægt að gera um það nána áætlun, bygða á reynslu.