Dvöl - 01.07.1939, Blaðsíða 3
DYÖL
7. árg. 1939
3. hefti
Týndi eiginmaðurinn
Eftir W. W. Jacobs
Jackson Pepper, uppgjafaflug-
maður, sat í litlu forstofunni á
nr. 3 Mermaid Passage, Sunset Bay,
gripinn vanmáttugri reiði, með ó-
ljósa tilkenningu í kinninni, sem
enn bar merki eftir hvatvísa fingur.
Forstofan, þar sem allt var í röð
og reglu, bar ekki nein merki eftir
hvirfilbylinn, sem þar hafði geis-
að. Jackson Pepper leit hikandi um-
hverfis sig, og minntist ósjálfrátt
fellibylja þeirra í hitabeltinu, sem
hann hafði lesið um, og sem aðeins
snertu hluti þá, sem urðu á vegi
þeirra, en létu allt annað kyrrt
liggja.
í þetta sinn hafði Pepper verið
hluturinn, og fellibylurinn hafði
þyrlazt upp mjóa stigann, sem lá
upp úr forstofunni, og skilið hann
eftir hlustandi kvíðafullan á fjar-
lsegar drunur hans.
Því miður var allt útlit á, að
stormurinn væri að koma aftur,
og hann hafði naumast tíma til
að setja upp rólegan svip afskipta-
leysisins, sem átti næsta illa við
rauðflekkótta kinnina, áður en stór
kona, rauð og þrútin í and-
liti, kom hlaupandi niður stigann
og vatt sér fram í forstofuna.
„Það er þér að kenna, að ég er
orðin veik aftur,“ sagði hún reiði-
lega, „og nú vona ég, að þú sért
ánægður með verk þitt. Þú drepur
mig áður en lýkur.“
Uppgj afaflugmaðurinn ók sér á
stólnum.
„Þú átt ekki skilið að eiga konu,“
hélt frú Pepper áfram. „Þú æsir
hana upp og reitir hana til reiði!
Allar konur, nema ég, myndu fyrir
löngu hafa yfirgefið þig!“
„Við erum aðeins búin að vera
gift í þrjá mánuði,“ sagði Pepper.
„Þegiðu!“ sagði kona hans. „Mér
finnst það vera heil eilífð.“
„Mér finnst það langur tími,“
sagði uppgjafaflugmaðurinn og
hleypti í sig kjarki.
„Þarna kemur það!“ sagði kona
hans og stikaði I áttina til hans.
„Segðu, að þú sért orðinn þreyttur
á mér, segðu, að þú vildir óska, að
þú hefðir ekki gifzt mér! Bleyða!
Ó! Ef vesalings fyrri maðurinn