Dvöl - 01.07.1939, Side 7
D VÖL
165
rétti vlni sínum. „Ég hefi skrifað
í dagbók á hverjum degi, allt það
sem hún hefir sagt um hann, í von
um að geta rekið eitthvað ofan í
hana, en það tókst aldrei. Ég hefi
skrifað um fjölskyldu hans, um
skipin hans, og allskonar vitleysu,
sem hann var vanur að segja, og
henni þótti svo gaman að.“
„Ég gæti aldrei gert þetta,“ sagði
skipstjórinn alvarlega, um leið og
hann tók við bókinni.
„Þú gætir það, ef þú vildir,“ sagði
Pepper. „Hugsaðu þér auk þess,
hvað þetta yrði gaman fyrir þig.
Lærðu það utan að og komdu svo
og gerðu kröfu til hennar. Hún
heitir Marta.“
„Hvaða gagn myndir þú hafa af
því, ef ég gerði það?“ spurði skip-
stjórinn. „Hún myndi brátt komast
að hinu sanna.“
„Þú kemur niður til Sunset Bay,“
sagði Pepper, og fylgdi hverju orði
eftir með visifingri; „þú gerir kröfu
til að fá konuna þína. Þú fylgir
nákvæmlega öllu, sem stendur í
þessari bók. Ég læt Mörtu af hendi
við þig, og blessa ykkur bæði. Svo
<<
„Hvað svo?“ spurði Crippen eftir-
væntingarfullur.
„Svo fer þú!“ sagði Pepper sigri
hrósandi, „og auðvitað verður hún
að skilja við mig, þar sem hún held-
ur að fyrri maðurinn hennar sé á
Hfi. Hún er ákaflega vönd að virð-
ingu sinni; og auk þess myndi ég
sjá um, að nágrannarnir fengju að
vita það. Ég yrði ánægður, þú yrðir
ánægður, og ef hún yrði ekki á-
nægð, þá á hún ekki annað skilið,“
„Ég skal hugsa um það,“ sagði
Crippen, „og senda þér svar í bréfi.“
„Geturðu ekki ákveðið það nú?“
spurði Pepper og klappaði á öxlina
á honum. „Ef þú lofar að gera það,
þá er það sama sem búið. Drottinn
minn! Mér er sem ég sjái þig koma
inn um dyrnar, henni að óvörum!“
„Er það laglegur kvenmaður?"
spurði Crippen.
„Mjög laglegur?" svaraði Pepper
og horfði út um gluggann.
„Ég get það ekki,“ sagði Crippen.
„Það væri ósanngjarnt gagnvart
henni.“
„Það get ég ekki séð,“ sagði Pep-
per. „Ég hefði aldrei átt að giftast
henni, án þess að vera hárviss um,
að fyrri maðurinn hennar væri
dauður. Það var ekki rétt; hvað sem
þú segir, Crippen, þá var það ekki
rétt!“
„Ja — frá því sjónarmiði séð,“
sagði skipstjórinn hikandi.
„Fáðu þér svolítið meira brenni-
vín,“ sagði flugmaðurinn sakleysis-
lega.
Skipstjórinn fékk sér meira, og
fyrir sameiginleg áhrif vinsins,
smjaðursins og þrábæna vinar síns,
fór hann að líta bjartari augum á
málið. Pepper notaði vopn sín svo
vel, að þegar skipstjóri fylgdi hon-
um út um kvöldið, var hann búinn
að skuldbinda sig til að koma til
Sunset Bay sem Budd skipstjóri á
fimmtudag í næstu viku.