Dvöl - 01.07.1939, Page 16

Dvöl - 01.07.1939, Page 16
Ný teng-sl yfir hafið Eftir Karl Strand stud. med. Fyrsta desember 1938 héldu íslendingar hátíðlegt 20 ára full- veldisafmæli sitt. Yfir Reykjavík var hátíðasvipur. Fánar blöktu við hún, skrúðgöngur fóru um götur bæjarins, söngvar voru sungnir og ræður fluttar. Þeir, sem þátt tóku í sjálfstæðisbaráttunni, annað hvort sem baráttumenn eða þög- ulir fylgjendur, rifjuðu á ný upp tuttugu ára gömul atvik, minntust sigra og ósigra, samherja og mót- herja. Sú kynslóð, sem fyrir tuttugu árum horfði fram og glímdi við óleyst viðfangsefni, leit nú til baka yfir farinn veg og unnin störf. Það kann ef til vill að þykja goð- gá, ef fullyrt er, að þetta fullveldis- afmæli hafi ekki átt jafn sterkan hljómgrunn í hugum okkar, sem fædd erum á öðrum tug 20. aldar- innar, eins og hinna, sem eldri eru. Eitt er víst, að okkar kynslóð — fólkið milli tvítugs og þrítugs — sem aldrei hefir tekið neinn beinan þátt í þjóðernislegri baráttu, hvorki á vígvelli orðsins né stálsins, horfir kaldari og rólegri á allar þjóðernis- legar tjáningar og upphrópanir en hinir, sem gengið hafa þar fram fyrir skjöldu. Flestum mun hætta til þess að líta á þau réttindi, sem þeir eru bornir og barnfæddir til, sem sjálfsögð og eðlileg. Hitt skal Kari atrand. aftur á móti látið ósagt, nema að viðkomanda hlaupi kapp í kinn, ef taka á þessi réttindi frá honum. Þannig gæti og farið um okkar kynslóð, sem mótazt hefir af hugs- unarhætti og þjóðfélagsaðstæðum áranna eftir stríðið. Þennan hátíðisdag, 1. des. 1938, gerðist atvik, sem ef til vill hefir vakið margan ungan íslending til meiri umhugsunar en afmæli full- veldisins. Sá atburður var útvarp íslendinga í Vesturheimi. Vitaskuld er það engin nýlunda

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.