Dvöl - 01.07.1939, Blaðsíða 24

Dvöl - 01.07.1939, Blaðsíða 24
182 DVÖL Hlustaðu á mig. — Ég fyrir mitt leyti hefi á samvizkunni ljóta sögu, atvik, sem veldur mér sífelldum á- sökunum og iðrun, já, meira en það, stöðugri eða ólýsanlegri óvissu, sem kvelur mig ægilega. Ég var þá tuttugu og fimm ára og var á ferðalagi um Bretagne með vini mínum, sem nú er Con- seiller d’Etat. Við vorum fótgang- andi, fórum úr einu héraði í annað. Eina nótt gistum við á sveitabæ, nafnið man ég ekki, það endaði á -of. Um morguninn var vinur minn veikur, en þar sem það var alger- lega ófært að liggja þarna, píndi ég hann á fætur og af stað. Klukk- an fjögur eða fimm komum við til Audierne. Næsta morgun var hann litlu betri, við lögðum samt af stað, en brátt varð hann yfirkominn af þreytu og sársauka, svo að við kom- umst með mestu hörmungum til Pont-Labbé. Þar hittum við loks á gistihús. Vinur minn fór þegar í rúmið, og læknirinn, sem við létum sækja til Quimper, sagði, að hann væri með hitasótt, en ekki gat hann fundið orsökina til hennar. Þekkirðu Pont-Labbé? Ekki það. Jæja, það er einhver sérkennileg- asta borgin í Bretagne, allt frá Pointe du Raz til Morbihan, íbú- arnir og borgin sjálf bera með sér kjarnann úr hugsunarhætti Bre- tagne-búa, munnmælum þeirra og venjum. Jafnvel í dag er þetta fjar- læga landshorn svo til óbreytt. Ég segi „í dag“, því að þótt undarlegt megi virðast, þá kem ég þangað nú orðið á hverju ári. Gamall kastali speglast í logn- kyrri tjöminni, en íbúar hans eru á stöðugri ferð, út og inn. Það eru aðeins villtir fuglar. í þröngum götum, sem liggja á milli gamalla, hrörlegra húsa, sjást íbúarnir, klæddir barðastórum hatti, útsaumuðu vesti og fjórum jökkum, sá innsti hylur aðeins herðablöðin, en sá yzti nær næstum niður fyrir stuttbrækurnar. Stúlkurnar eru háar og grannar, hressar og ilmandi, klæddar fötum úr þykku efni. Kjóllinn myndar einskonar brjósthlíf og lífstykki, nærskorinn klæðnaður, sem gefur grun um fegurð og yndisleik hinna ávölu, lifþrungnu brjósta. Höfuð- búnaður þeirra er einnig einkenni- legur. Yfir gagnaugunum eru tvö útsaumuð bönd, litur þeirra er val- inn í samræmi við andlitið, þau eru bundin aftur fyrir hnakkann, undir hárið, sem fellur frjálst niður bak- ið, en er einnig oft brugðið undir lítinn barðalausan hatt eða húfu, sem oft er útsaumuð gull- eða silf- urþráðum. Þjónustustúlkan í veitingahúsinu okkar var í hæsta lagi átján ára gömul. Hún hafði blá augu, með leiftrandi fögrum, dökkum, glamp- andi augasteinum og stuttar þéttar, skínandi hvítar tennur, sem sáust í hvert skipti, er hún hló, og virt- ust einungis ætlaðar til þess að bíta sundur granit. Hún kunni ekki orð í frönsku, en talaði þessa Bre-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.