Dvöl - 01.07.1939, Side 42

Dvöl - 01.07.1939, Side 42
200 D VÖL Hér hef ég fargað heilsu og kröftum. Hugraun marga sinnið ber. Burtu úr varga klóm og kjöftum, kýs ég að bjarga sjálfum mér. Þriðja vísan er bezt, dýrt kveðin og leikandi lipur: Byrinn ýtir beint úr vör, boðinn spýtir hrönnum. Skeiðin þýtur eins og ör, undir nítján mönnum. Sigurður var tvíkvæntur. Síðari kona hans var prestsekkja, að Fitj- um í Skorradal, Ragnheiður Egg- ertsdóttir að nafni. Þó að Sigurður væri þá af æskuskeiði, virðist til- hugalífið hafa tekið hann all geyst, eins og þessi vísa bendir til, er hann sendi kunningja sínum: Veit ég hefirðu vinur frétt, vaxa fer mitt yndi. Gullkóróna gimstein sett, glitrar á hjarnar tindi. En engin stór ósköp standa lengi, því að nokkru síðar sendir hann sama manni þessa vísu: Nú er ég kvíum óláns á, örgum bý með svínum. Mér var stýjað frægum frá, frændarýjum mínum. Samkomulagið virðist líka hafa verið stirt, eftir vísu að dæma, sem hann kvað sunnudag einn, er kona hans var eitthvað að nudda í hon- um, að vanda. Vísan er svona, og er hún víða kunn: Þó ég gangi margs á mis, mundi ég una högum, ef friðarögn til fágætis, fengl á sunnudögum. Svo brast þolinmæðin til fulls. Hann tók saman föggur sínar og fór burtu með þessa vísu á vör- Fleiri vísur Sigurðar leyfir tím- inn mér ekki að lesa nú, og er þó af nógu að taka. Sigurður var fað- ir séra Helga á Melum, sem kunnur er fyrir íslenzka bragfræði. Hefir eplið því þar ekki falið langt frá eikinni. Þá bregð ég mér nú hundrað ár áfram í tímann, fram á fjórða tug tuttugustu aldarinnar. Þá er það, að skáldið Halldór Kiljan Laxness gefur út Ijóðabók. Margir væntu mikils af hinu snjalla skáldi og keyptu bók þessa. Meðal þeirra var roskin kona, er heitir Ingveldur Einarsdóttir og lengi hefir verið til heimilis að Reykjum í Mosfellssveit. En hún virðist hafa orðið fyrir vonbrigðum allmiklum, eftir vísu þeirri að dæma, er hún kvað að lestrinum loknum. Til skýr- ingar þeim sem ekki hafa séð um- rædda bók, skal þess getið, að hún var ódrýgilega prentuð, víða nokkr- ar línur á blaðsíðu og eyður stórar á milli. Vísan er svona: Þitt hef ég lesið, Kiljan, kver, um kvæðin lítt ég hirði. En eyðurnar má þakka þér, þær eru einhvers virði. Þessa vísu kvað Ingveldur einu sinni á örvæntingaraldrinum: Mér er orðið lífið leitt, lífs er slokknuð þráin. Stíg ég fetið eitt og eitt út í tóman bláinn. unum:

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.