Dvöl - 01.07.1939, Qupperneq 45

Dvöl - 01.07.1939, Qupperneq 45
DVÖL 203 Kom á fólkið hálfgert hik. Hattinum Clausen lyfti, og eftir nokkur augnablik urðu stjórnarskipti. Þema ein til þeirra gekk, þeim hún sæti velur. Með Clausen fór á bezta bekk, en bílstjórann í felur. Oft hafa litlar þakkir þáð, þeir, sem harðast púla. Köld eru jafnan konuráð. Clausen steypti Skúla. Þeir sem feta stjórnarstig og stíga í hæstu raðir. Svei mér verða að vara sig að vera berhausaðir. Ókunnugur undur létt öðlast valda-ljómann. En enginn heldur stöðu og stétt með stjórnarhausinn tómann. Þessu svaraði Skúli Guðmunds- son, fyrir þá félaga, með þessum tveim vísum: Þótt ’ann hefði höfuðlat og heldur góðar flíkur, aldrei Bjarni orðið gat yfirmanni líkur. Þar er ekki — það er frá — þörf á skýringonum. Stúlkur villast aldrei á æðsta manni og honum. Þá ætla ég að fara með nokkrar af hinum svokölluðu „sláttuvísum", sem verið hafa á margra vörum í sumar. Tilefnið var þetta: Vorið var ó- venju gott, eins og menn muna og spruttu tún með fyrsta móti. Voru margir viðbúnir að byrja sláttinn snemma. Ólafur í Brautarholti er dugnaðarbóndi mikill og ætíð með þeim fyrstu að byrja heyskap. En nú höfðu margir hugsað sér að verða fyrstir að bera út. En ein- hvern veginn atvikaðist það svo, að um það leyti sem Ólafur byrjaði að slá, kom hann til Reykjavíkur, hittir blaðamann frá Morgunblað- inu. Tíðarfarið og sláttarbyrjunin berst í tal. Blaðamaðurinn með það i Moggann — Mogginn í Útvarpið og óðar en varði var sú fregn kom- in út um allt land, á öldum ljós- vakans, að Ólafur í Brautarholti væri byrjaður að slá. Nú þótti okk- ur hinum Ólafur hafa skotið okkur ref fyrir rass og þessa yrði að hefna. Var þá eins og oftar áður, gripið til visnagerðarinnar. Kveð- skapur þessi byrjar á vísu, sem mér er eignuð og er svona: Brautarholtstúnið grænkar og grær, grösin leggjast á svig, Ólafur slær og Ólafur slær, Ólafur slær um sig. Út af þessu sprettur síðan sá urmull af sláttuvlsum, að ég get ekki farið með nema nokkrar þeirra. Næsta vísa er eftir Kolbein í Kollafirði. Hann er sveitungi Ól- afs og varð í vegi fyrir vísunni, þegar hún var á leið til Brautar- holts. Grípur hann skeytið á lofti og sendir til baka, með svohljóð- andi vísu: Ólafi þarf ekki að lá, aðra menn ég þekki, Þeir eru að slá og þeir eru að slá, þótt þeir slái ekki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.