Dvöl - 01.07.1940, Blaðsíða 17

Dvöl - 01.07.1940, Blaðsíða 17
DVÖL 175 dapurlegu, en óumflýjanlegu, endalok þess. Þegar síðasta roðablikið hvarf af aust- urfjöllunum, reið séra Jón í hlaðið á Hjalla. Hjalti Helgason, kviklegur maður og hvatur í máli, fagnaði vel fornvini sín- um og leiddi til stofu. Eftir að presturinn hafði neytt matar og Hjalti hafði spurt um líðan tengdamóður sinnar — aðallega fyrir siða sakir, fannst séra Jóni -— gekk húsráðandi að litlum skáp í stofuhorninu, opnaði hann og mœlti: „Hér geymi ég mín náðarmeðul, Jónki, og nú verður þú til altaris hjá mér í kvöld.“ Því næst setti hann drykkjarföngin á borðið fyrir framan prest. Séra Jón hafði alla daga verið hófsmaður, en þó ekki skorazt undan að bergja á glasi í góðum félagsskap. Og þarna í hlýrri og vistlegri stofunni hafði hugblærinn frá sóttarsæng gömlu konunnar þokast svo langt í burtu, að hann gat ekki neitað gömlum félaga um að skála við hann, enda þótt af nokk- urri léttúð hefði verið á náðarmeðulin minnzt í þessu sambandi. Fyrsta glasið yljaði svo undur notalega fyrir brjósti. Hjalti Helgason hellti aftur í glösin. „Jæja, Jónki. Ja, ég ætti víst að segja séra Jón, en hitt er tungunni tamara frá gömlum dögum.“ „Vertu rólegur. Ég móðgast ekki af þessu ávarpi," greip séra Jón fram í. „Jæja, sjáum til, gleðilegt er að heyra það. Já, Jónki, nú hefir þú hlotið vígslu, kjól og kall, og ert orðinn séra, bæði fyrir guði og mönnum. En ég? Ég er bara bóndadurgur í gömlu sveitinni minni, föð- urlandinu, þar sem enginn verður spámað- ur. Þannig er nú kjörum okkar skipt. En segðu mér eitt í fullri hreinskilni, séra Jón. Ert þú nokkuð sælli en við, bænda- karlarnir?" Þessi spuming kom óþægilega óvænt, og séra Jón minntist hinnar skyndilegu löng- unar áður um kvöldiö, til að vaða í leir- keldunni. Hann drakk úr glasinu, sneri Því milli fingranna og sagði: „Hvort ég er sælli en þið bændumir, er ekki á mínu valdi að meta. Ég get aðeins fullvissað þig um, að ég er ánægður í mínu starfi. Ég hefi náð því takmarki, sem ég setti mér, þegar við vorum saman í skóla, og ég vona að framtíðarstarf mitt megi bera góðan ávöxt." „Já, Jónki — nei, séra Jón — þú hefir náð takmarki skólaáranna, hempunni og kallinu. En ég átti ekkert takmark á þeim árum. Það var blessaður sauðurinn hann faðir minn, sem ætlaði að gera mig að gullhnöppuðum sýslumanni. Það mistókst eins og þú veizt. Mitt hlutskipti varð þó rík og falleg heimasæta, og þótt auðurinn og fegurðin hafi eyðzt með árunum, er það aðeins endurtekin gömul saga. Mitt hlut- skipti hefir orðið gott, og reyndar betra en ég átti skilið, en bezt er þó frelsið, sem minni stöðu fylgir, ef maður kann þá list, að gleyma skuldabaslinu, nema þá á gjald- daganum.“ „Ég samgleðst þér með heimasætuna og bújörðina, gamli vinur,“ sagði presturinn og tæmdi glasið. „Ég hefi engu undan að kvarta," hélt Hjalti áfram, „en eðli mannsins er víst þannig, að hyggja auð lífsánægjunnar mestan í garði náungans. Stöku sinnum finnst mér, að lífið hafi svikið mig um einhver gæði, sem því bar að veita mér, og þá hefi ég stundum tekið þau ógefin. Slíkar gripdeildir leyfa hempuklæddir kirkjunnar þjónar sér víst ekki?“ Hjalti mælti síðustu setninguna með tvíræðu glotti á andlitinu. „Við ykkur embættis- mennina vildi ég aldrei skipta kjörum, og sízt af öllu við ykkur prestana, því máttu trúa. Hvað er strit og basl kotbóndans á móti ófrelsi embættismannanna, einkum ykkar, sem hnepptir eruð í hempuna. Þið eigið að prédika á hverjum helgidegi árs- ins, ýmist yfir tómum bekkjum eða fáein- um sofandi sálum, skíra, ferma, gifta og greftra þá, sem upp af hrökkva. Flytja lík- ræður eftir beiðni og þjónusta deyjandi kerlingar. Slikar byrðar væru mér ofur- efli.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.