Dvöl - 01.07.1940, Blaðsíða 77

Dvöl - 01.07.1940, Blaðsíða 77
DVÖL 235 til sveitanna, svo að orð sé á ger- andi, en í kaupstöðum ryður hún sér æ meir til rúms, og borgin í Fossvogi, urðin í brekkunni móti hásuðri, er átakanlegasta dæmi hennar hér á landi. Kirkjugarðurinn í Fossvogi var vígður árið 1932 og hafa þar verið jarðsettir um 1200 manns. Þetta er þó aðeins nokkur hluti þeirra, sem jarðsettir hafa verið í Reykjavík á tímabilinu, því að mikill f jöldi hefir verið jarðsettur í garðinum við Ljósvallagötu. Eftir upplýsingum kirkjugarðsvarðar hefir meðaltala dauðsfalla í Reykjavík verið nálægt 300 manns á ári, eða um 2500 manns í átta ár. Einfaldasti út- búnaður á leiði í Fossvogi er slétt- múraður steinkassi, óskreyttur og án áletrunar. Meðalverð á slíkum umbúnaði hefir verið nálægt kr. 100,00, eða rúmlega það. Allur f jöldi leiðanna hefir þó fengið stórum dýrari og umfangsmeiri útbúnað og mun hóflega reiknað, ef talið er að meðal kostnaðarverð hafi veiúð kr. 225,00 á eins manns grafreit. Hefir þá steinumbúnaður í garðinum á leiðum þessara 1200 manna kostað samtals kr. 270000,00. En ef með er tekinn steypuumbúnaður reistur á sama tímabili (eða fyrirfram gerð- ur) í kirkjugarðinum við Ljósvalla- götu, og miðað við fyrrnefnda dán- artölu í Reykjavík, þá verður upp- hæðin samtals kr. 562500,00. Það skal tekið fram, að reiknað er með verðlagi því, sem gilti fyrir stríð. Áætlað er, að kirkjugarðurinn í Fossvogi verði 12 ha. að stærð. Hver grafreitur er nálægt 1.20X2.50 m., en auk þess eru götur og gang- stéttir og má búast við, að það taki yfir allt að 25% af garðstærðinni. Verða þá eftir um 9 ha. fyrir graf- reitina sjálfa. Kirkjugarður þessi rúmar því um 30000 grafreiti og með sama verðlagi á steypuumbún- aði grafreitanna og að framan get- ur, verður þá samlagt kostnaðar- verð þeirra um kr. 6750000,00 — sex miljónir sjö hundruð og fimmtíu þúsund krónur —. Þetta er mikið fé. Það er meira en ferfalt kostnaðarverð háskólabygg- ingarinnar nýju, einnar dýrustu og vönduðustu byggingar á íslandi. Fyrir þessa upphæð mætti byggja steinsteypt íbúðarhús á 750 jörðum fyrir kr. 9000,00 hvert. Þessum tæplega sjö miljónum króna veröur eytt í gagnlausa, þýð- ingarlitla og fremur hégómlega steinsteypuvarða í þessum eina kirkjugarði á næstu 40—50 árum. Og hverjir verða svo til þess að hirða um hina einstöku grafreiti að þeim tíma liðnum? Hvað verður það metið, þetta, sem við erum að streitast við að gera nú, oft af litl- um efnum, til sæmdar horfnum vinum og sjálfum okkur til hugar- hægðar? Það verður einkis metið og minna en það. Það verður meira að segja rifið niður og flutt á brott þegar stundir líða. Það eina, sem hefir eitthvert verðmæti í þessum efnum, er sú huggun og fullnæging, sem við sjálf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.