Dvöl - 01.07.1940, Síða 48

Dvöl - 01.07.1940, Síða 48
206 DVÖL Og það gengur talsvert lengra í hlutleysi heldur en hið lögfræðilega viðhorf gerir. Góður dómari reynir að líta hlutlaust á mál þeirra Jóns Jónssonar og Chang Sing. Góður vísindamaður dæmir hlutlaust á milli Jóns Jónssonar, tólffótungs og sólkerfisins. Hann hefur sig yfir meðfædda andúð á tólffótungnum, sem myndi koma honum til þess að kasta honum frá sér, í stað þess að þaulrannsaka hann eins og mynda- styttu eða hljómkviðu. Og hann lætur ekki skelfast af mikilleik sól- kerfisins, sem kom forfeðrum hans til að tilbiðja hnetti þess, eða að minnsta kosti að skoða þá sem ó- rannsakanlega þjóna almættisins, öllum mannlegum skilningi ofar. Þetta viðhorf gerir vísindamann- inn í senn stoltan og auðmjúkan. Sólkerfið reynist að vera hópur af hnöttum, fremur smávöxnum í samanburði við marga nágranna sína, sem þreyta skeið sitt eftir föstu og fremur auðskildu lögmáli. En sjálfur er hann fremur vangef- inn einstaklingur af sömu kynkvísl og aparnir og hugsanafar hans er komið undir ýmsum efnabreyting- um í líkama hans, sem hann skilur aðeins lítið af og hefir ekkert telj- andi vald yfir. Hið vísindalega sjónarmið er þannig réttnefnt „guðs auglit“, að því leyti sem það gerir öllum fyrir- brigðum jafnhátt undir höfði. En það er siðferðilega hlutlaust og að því leyti algerlega frábrugðið því, sem trúarbrögðin álíta um „guðs auglit“. Vísindin geta ekki skorið úr um það, hvað réttmœtt sé eða ranglátt og þau ættu ekki að fást við það. Þau geta sagt um afleið- ingarnar af ýmsum gerðum, en þau geta ekki kveðið upp dóm yfir þeim. Gerlafræðingurinn segir aðeins, að sóttmengun á neyzluvatni eða mjólk muni að líkindum geta vald- ið eins mörgum dauðsföllum og sprengikúla, sem er varpaö niður á fjölförnustu götu borgarinnav. En hann er ekki fremur öðrum, sem vita þetta, fær um að skera úr, hvort þessir tveir verknaðir eigi að vera jafn refsiverðir. Mótstöðu- menn vísindanna ásaka þau á vixl fyrir að daufheyrast við siðferði- legum sjónarmiðum eða fyrir að blanda sér í „siðferðileg vandamál", sem þeim séu óviðkomandi. Þessar ásakanir geta ekki báðar verið rétt- ar. — Almenningi hættir jafnan við að láta meira stjórnast af tilfinning- um og siðfræðilegu hliðinni á mál- efnum, heldur en hinum fremur þurru staðreyndum, er vísindin gefa gaum. Tvö dæmi mætti nefna: Vandamálið með svertingjana í Ameríku og sjúkdómana. Mikill þorri Ameríkumanna er þeirrar skoðunar, að svertinginn sé lægri vera heldur enn hvíti maðurinn, og ætti því, svo sem unnt er, að vera útilokaður úr samfélagi við hinn hvíta. Aðrir halda því fram, að þeir ættu að vera jafn réttháir. Það er ekki meðfæri líffræðingsins að gera þarna upp á milli. Hann
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.