Valsblaðið - 01.05.1999, Page 58
Langbeslír
skornir hans!
Kíkt í kassa Frímanns Helgasonar
Á haustmánuðum kom Frímann Ægir
Ferdinandsson, bamabarn Frímanns
Helgasonar eins af frumkvöðlum Vals, til
greinarhöfundar og afhenti honum kassa
sem afi hans hafði haft í fórum sínum.
Frímann Helgason var formaður Vals frá
1934-1937 og aftur frá 1941-1942. í
kassanum var ýmislegt fróðlegt að finna
en auk þess hafði Frímann Helgason
geymt landslagsmálverk sem Fram hafði
gefið Val á 25 ára afmæli félagsins. Silf-
urskjöldur er neðst á málverkinu sem
staðfestir það. Minjanefnd Vals hefur
fengið kassa Frímanns Helgasonar til
varðveislu en í honum eru fjölbreytt
gögn, bréf, ræður, skýrslur, frásagnir,
Valsblöð, ferðasögur, vísur og fleira sem
tengjast sögu Vals.
Eftiptaldip hlutip/gögn
epu m.a. í kassanum:
• Teikningar frá 19. maí 1954 af íþrótta-
húsi og félagsheimili Vals auk hand-
skrifaðra frumteikninga.
• Frumrit af grein í Valsblaðið frá Reid-
ari Sörensen sem kom til Islands árið
1923 og þjálfaði hjá Val.
• Dagskrá vegna 50 ára afmælishófs
Vals í Sjálfstæðishúsinu 4. mars 1961.
• Eyðublöð vegna gjafa einstaklinga á
birkitrjám á íþróttasvæðið að Hlíðar-
enda.
• Prentaður einblöðungur frá 6. júní
1919 með yfirskriftinni „Knattspymu-
mót Islands." Öðrum megin á blaðinu
eru liðin fjögur, Fram, Reykjavík
(KR), Valur og Víkingur auk liðsupp-
stillingar. Á bakhliðinni em fimm aug-
lýsingar. Á framhliðina hefur einhver
Valsmaður skrifað: „Tókum þátt í
þessu móti vegna fjélagsskapar og
fjárhags. Einnig stóð handskrifað að
Valur tapaði 9:0 fyrir Fram, 3:0 fyrir
Reykjavík og að Valur hafi ekki leikið
við Víking vegna liðsskorts. Leikmenn
Vals, sem lék í bláröndóttum peysum
og bláum buxum, voru tilgreindir:
Stefán Ólafsson, Helgi Bjarnason, Fil-
ippus Guðmundsson, Tómas Alberts-
son, Magnús Guðbrandsson, Ólafur
Bergmann, D. Þorkelsson, S.T. Gunn-
arsson, Guðmundur Jósefsson, Axel
Gunnarsson, Karl Þorsteinsson, Guð-
mundur Guðmundsson og Elías Jóh.
Frumrit af nótum „Valsmarsins“.
Grein úr Alþýðublaðinu um úrslitaleik
Islandsmótins 1930 þegar Valur sigr-
aði KR, 2:1 með mörkum frá Jóhann-
esi Bergsteinssyni. Þetta var 1. íslands-
meistaratitill Vals. „Gerðu Valsmenn
margar prýðilegar árásir að marki KR
og sýndu í þeim ljómandi samleik en
ekki heppnaðist þeim að gera fleiri
mörk hjá KR, enda voru flestir KR-
ntenn komnir í vörn.“
Gamlar reglur fyrir félagsheimili Vals:
Góðir Valsmenn og gestir. Minnizt þess:
1) Að ganga snyrtilega um húsakynni
heintilisins og fara vel með hús-
búnað þess.
2) Að sýna háttvísi í meðferð tóbaks
og fara varlega með eld.
3) Að áfengi má ekki hafa um hönd í
félagsheimilinu eða á lóð þess.
4) Að menn undir áhrifunt áfengis fá
ekki að dveljast í í félagsheimilinu.
5) Að glaðværð og prúðmennska er
skilyrði skemmtilegs félagslífs.
(Húsnefndin)
Tillögur að starfsemi unglingadeilda
innar félagsins. (Mjög ítarlegt)
Lög Knattspymufélagsins Vals, sam-
þykkt 25. febrúar 1958. „Búningur fé-
lagsins er rauð peysa með hvítum kraga
og uppslögum, hvítar buxur með blá-
um leggingum og himinbláir sokkar
með hvítum stroffum."
Fjöldi gamalla Valsblaða.
Sumarauki tileinkaður m/s Gullfossi.
Blá mappa með rnynd af Gullfossi og
nótum. Texti eftir Guðjón Halldórsson.
Lag eftir Sigfús Halldósson. Blaðaúr-
Mynd úr kassa Frímanns Helgasonar af 4. flokki Vals árið 1951. Efri röð frá vinstri:
Pál! Guðnason unglingaleiðtogi, Guðmundur Asmundsson, Steinþór Arnason, Þórir S.
Guðbergsson fyririiði, Þórður Ulfarsson, André Kristmundsson, Benedikt Sveinsson.
Neðri röðfrá vinstri: Geir V. Svavarsson, Þorsteinn Friðjónsson, Björgvin Hermanns-
son, Elías Hergeirsson og Olafur Asmundsson.
58
Valsblaðið 1999