Valsblaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 24
2.flokkur karla haustmeistarar 2001. Efri röð f.v.: Ari Guðmuhdsson, Arnar Steinn Einarsson, Elías Ingi Árnason, Helgi Ásgeirsson,
Jón Karlsson, Baldur Þórólfsson, Trausti Agúst Hermannsson, Egill Þórarinsson, Haraldur Ingi Shoshan , Zeljko Sankovic, Theódór
S. Halldórsson, Sveinn Stefánsson og Olafur Már Sigurðsson. Fremri röðf.v.: Hjalti Sigurðsson, Jökull Astþór Ragnarsson, Steinþór
Gíslason, Bjarni Olafur Eiríksson, Orri Erlingsson, Þorkell Guðjónsson, Birkir Scevarsson, Sigurður Páll Skúlason. (Mynd: Þ.O.)
að knattspymustefnunni frá Val þeir
Zeljco Sankovic yfirþjálfari og Olafur
Már Sigurðsson ásamt Guðna Olgeirs-
syni sem ritstýrði verkinu.
Á 90 ára afmæli Vals þann 11. maí var
knattspymu- og uppeldisstefnan afhent
félaginu, á táknrænan hátt þótt svo að
verkinu væri ekki að öllu leyti lokið.
Áformað er að ljúka við og leggja stefn-
una fram í desember í umræðuhóp og til
samþykktar þannig að hægt sé að fara að
vinna eftir henni í upphafi næsta árs. Það
er þó þannig með slíkt gagn að það á að
vera lifandi og taka breytingum í takt við
tímann hverju sinni.
Knattspyrnu- og uppeldisstefna Vals
verður aðgengileg á heimasíðu Vals strax
um áramótin. I framhaldi af þessum
áfanga verður farið í að setja upp afreks-
stefnu félagsins sem hefst í 3. flokki
drengja og 2. flokki stúlkna. Afrekstefn-
unni er ætlað að móta þjálffræðilega og
uppbyggingu frá þessum flokkum upp í
meistaraflokka félagsins.
Valur stendur frammi fyrir því að iðk-
endafjöldi yngri flokka félagsins er ekki
nægur. Þessu þarf að breyta og ná til
fleiri iðkenda. Unglingaráð fékk úthlutað
tímum í Austurbæjarskóla nú í haust
með það að markmiði að ná til fleiri iðk-
enda úr því skólahverfí. Gefinn var út
bæklingurinn „VELKOMIN í VAL“ sem
dreift var í skólana í Valshverfinu, þ.e.
Hlíðaskóla, Austurbæjarskóla, Háteigs-
skóla, ísaksskóla auk Æfingadeildar KHÍ.
I þessum skólum eru um 2.000 nemend-
ur. Þjálfarar flokkanna heimsóttu skólana
og afhendu nemendum bæklinginn.
Þá er einnig kominn út annar bækling-
ur, stærri í sniðum en hinn fyrri, sem
inniheldur hagnýtar upplýsingar um
starfsemina í flokkunum og er ætlaður
fyrir iðkendur Vals í knattspyrnu og for-
eldra þeirra. Það er ljóst að til að standa
að öflugu unglingastarfi þarf margt að
koma til. Kraftmiklir iðkendur, öflugir
þjálfarar, dugmikið foreldrastarf, dómar-
ar og vinnusamt unglingaráð og er þessu
fólki færðar bestu þakkir fyrir þeirra
framlag til félagsins. Rekstur unglinga-
ráðs kostar mikla peninga og er æfinga-
gjöldum iðkenda ætlað að standa undir
launakostnaði þjálfara. Innheimta æf-
ingagjalda er því mikilvægasta tekjuöfl-
un unglingaráðs og því nauðsynlegt að
æfingagjöldin séu greidd samviskusam-
lega. Aðrar fjáraflanir, sem unglingaráð
stendur fyrir til að standa straum að
kostnaði við reksturinn, er rekstur sölu-
tjalda í miðborginni á 17. júní og rækju-
sala fyrir jól og páska.
Undir unglingaráðið heyra 3.-7. flokk-
ur karla og 3.-6. flokkur kvenna.
3. flokkur karla
Um 30 drengir æfðu með flokknum og
náðu oft á tíðum að sýna ágæta knatt-
spymu. Flokkurinn tók þátt í íslandsmót-
inu með tveimur 11-manna liðúm sem
var nýjung í mótafyrirkomulagi hjá KSI.
Aldrei áður hafði verið keppt í keppni B
liða í 11-manna liðum en þetta fékkst
samþykkt hjá KSÍ eftir tillögu frá Val. B
liðið lenti í 2 sæti á íslandsmótinu eftir
harða baráttu við Fram. A liðið náði
helsta markmiði sínu á íslandsmótinu
sem var að vinna sig upp um riðil, úr C í
B deild. Bæði Valur og Stjaman flytjast
úr C í B deild. Valur beið hins vegar
lægri hlut fyrir Stjömunni í leik um að
komast í úrslitakeppni íslandsmótsins. B
liðið varð síðan sigurvegari á haustmót-
inu en annars var árangur flokksins í
heild ágætur á mótum sumarsins.
Flokkurinn fór í æfmgaferð til Portú-
gals. I ferðina fóru 26 drengir og heppn-
aðist ferðin í alla staða mjög vel og
styrkti hún hópinn bæði æfingalega og
félagslega. Þjálfarinn, Þór Hinriksson,
vildi fá að koma á framfæri sérstöku
þakklæti til foreldra drengjanna og for-
eldraráðsins sem hann sagði hafa stutt
vel við starfið á árinu. Það hefði meðal
annars séð um fjáraflanir drengjanna
með góðum árangri og áttu sumir
drengjanna meira inni en ferðin kostaði
þegar kom að því að greiða fyrir ferðina!
Þór Hinriksson hefur verið endurráð-
inn jafnframt en hann mun einnig þjálfa
2. flokk karla.
Bemburgskjöldurinn er veittur þeim
22
Valsblaðið 2001