Valsblaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 48
Agúst ásamt þekktum NBA köppum Johnny Dawkins og Hersey Hawkins.
bilið. Hjá Duke er sérstakt lið skipað
strákum sem stelpurnar æfa sig alltaf á
móti og það gera langflest liðin í
kvennakörfunni þar. En það sem vakti
líka athygli mína var hve góð umgjörð er
í kringum liðin. Þrír aðstoðaþjálfarar og
sjúkraþjálfari, líkamsþjálfari, fram-
kvæmdastjóri og rnenn sem sjá um að
allt sé á sínum stað eins og boltar og
Agúst ásamt NBA súperstjörnunni Ras-
heed Wallace leikmanni Portland Trail
Blazers. Hann er fyrrum „5star“ leik-
maður.
fleira. Alls voru 17 manns í kringum æf-
ingamar hjá Duke og 13 leikmenn.
Svona er þetta hjá öllum stærri skólum í
Bandaríkjunum. Æfmgamar ganga líka
mjög hratt fyrir sig, engin bið á milli æf-
inga. Síðan segja menn að það sé nóg að
hafa einn þjálfara hér heima en það er al-
veg ljóst að betur sjá augu en auga. Þess-
ari hugsun þurfa menn að breyta."
Jeff LaMer, yfirmaður körfuboltans í
Duke (Director of Basketball oper-
ations), bauð Ágústi að koma á leik eða
námskeið eftir sumarið. Þeir héldu
reglulega sambandi og sl. haust bauð
hann Ágústi að koma á námskeiðið sem
var haldið um miðjan október. „Ég veit
ekki af hverju hann valdi mig af 150
þjálfurum sem voru að þjálfa í búðunum
í sumar og þeim 800 þjálfuram sem voru
á námskeiðinu. Hann sagði reyndar að
sér fyndist ég hafa staðið mig vel í sum-
ar. Ég var kynntur sérstaklega þegar
námskeiðið byrjaði og Jeff talaði um mig
á fundi með öllum þjálfumnum áður en
ég mætti vegna þess að ég lagði á mig
langt og strangt ferðalag til að sækja
námskeiðið.“
Þú hefur starfrækt þinn
eigin körfuknattleiksskóla,
hvernig hefur það gengið?
„Síðastliðin þrjú sumur hef ég verið með
körfuknattleiksskóla í Valsheimilinu og
hefur iðkendum í búðunum fjölgað jafnt
og þétt. I sumar styrktu Andl búðimar
og voru þær kallaðar körfuknattleiksbúð-
ir Andl og komu 80 leikmenn allstaðar
að af landinu. Búðimar verða næsta
sumar líka og koma þá væntanlega þjálf-
arar frá Bandaríkjunum og vonandi fleiri
áhugasamir íslenskir þjálfarar. Búðimar í
sumar voru byggðar upp svipað upp og
búðimar í Bandaríkjunum."
Stefnir hugur þinn til Bandaríkjanna
í framtíðinni, langar þig til að fara
þangað til að þjálfa?
„Mig langar mikið að þjálfa Bandaríkj-
unum, einkum að komast að sem að-
stoðaþjálfari og vinna mig út frá því.
Þetta er á fimm ára plani hjá mér en áður
gæti ég hugsað um að fara í kennarahá-
skólann."
Hversu mikilvæg telur þú að
þau sambönd sem þú hefur komist
í séu fyrir þig sem þjálfara?
„Ég hefði væntanlega aldrei komist til
Duke eða Five Star ef ég hefði ekki
þekkt Pétur Guðmundsson. Hann kom
mér óbeint í þessi sambönd. Ef Jeff
LaMer hefði ekki boðið mér að koma
núna hefði ég aldrei farið því það hefði
verið of kostnaðasamt. Jeff kynnti mér
líka betur fyrir þjálfurum í Duke. Hann
fór t.d með mér út að borða síðasta
kvöldið með Coach K. og aðstoðaþjálf-
urum hans, Steve Wojciechowski og
Chris Collins, sem er sonur Doug Coll-
ins þjálfara Washington Wizards. Ég tal-
aði við þá alla í sumar en þekki þá enn
betur nú. Þegar ég talaði við Howard
Garfmkel í sumar bauðst hann til að
hjálpa mér að koma mér á framfæri ef ég
vildi. „Garf“ er þekktur fyrir að hafa
komið mörgum þjálfurum á framfæri,
t.d. Mike Fratello, Bobby Knight, Rick
Patino o.fl. þannig að það er ekki slæmt
að geta fengið hjálp frá þessum manni. “
Ráðleggur þú íslenskum
unglingaþjálfurum að reyna áð
komast í svona búðir til að þjálfa
og fylgjast með og hvernig væri
réttast fyrir menn að bera sig að?
„Ég ráðlegg ekkert síður meistaraflokks-
þjálfurum en unglingaþjálfurum að kom-
ast út að þjálfa í æfingabúðum, hafí þeir
metnað og vilja til. Þetta er frábær
reynsla því við lærum svo lengi sem við
lifum. Heppilegast er að þekkja einhvem
sem getur skapað sambönd eins og Pétur
gerði í mínu tilviki. Ég gæti líka eflaust
hjálpað til ef ég vissi að viðkomandi
væri duglegur og áhugasamur. Ég fer aft-
ur út næsta sumar og tek þá með mér
leikmenn og eflaust verður líka pláss fyr-
ir áhugasama þjálfara."
Að lokum einhver
holl ráð til unglingaþjálfara?
„Það er aldrei nein ein rétt leið að mark-
miðinu, heldur margar áhugaverðar.
Farðu þínar eigin leiðir og tileinkaðu þér
þá hluti sem henta þér og þínum aðferð-
um. Áhugi skiptir öllu máli því um leið
kviknar áhugi hjá leikmönnum þínum.
Leggðu þig alltaf fram því ef þú ætlast til
að leikmenn þínir leggi sig fram verður
þú að gera slíkt hið sama. Búðu stöðugt
til krefjandi verkefni fyrir leikmennina.
Þú uppskerð eins og þú sáir.“
46
Valsblaðið 2001