Valsblaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 108
Ungir Valsarar
Körfuboltakappinn á ekki langt að sækja
hæfileikana því faðir hans, Hólmarinn
Kristján Agústsson, er einn sterkasti
körfuknattleiksmaður íslands fyrr og síð-
ar. Hann spilaði yfir 300 leiki með meist-
araflokki Vals og 65 landsleiki. Sonurinn
hefur því að miklu marki að stefna ætli
hann að skáka „gamla“ manninum. „Jú.
auðvitað ætla ég að verða betri en
pabbi,“ segir Guðmundur aðspurður en
kíminn. „Við spilum stundum einn á
einn og vinnum eiginlega til skiptis en
hann er frekar góður ennþá.“ Guðmund-
ur segir að það hafi verið frekar leiðin-
legt að pabbi hans skuli hafa verið hættur
í meistaraflokki þegar hann fæddist.
Guðmundur er í 9. bekk í Alftamýrar-
skóla, fæddur 18. október 1987. Móðir
hans heitir Jóhanna Rún Leifsdóttir.
Guðmundur hefur mikinn áhuga á hest-
urn sökum þess að afi hans er á kafi í
hestamennsku sem og nokkrir frændur
hans. Hann reyndi fyrir sér bæði í hand-
bolta og fótbolta á sínum „enn yngri"
áruni en körfuboltinn hafði sigur. „Ég fór
í Val af því að pabbi spilaði ineð Val og
svo átti ég tvo góða vini sem léku með
Val og gera enn. Þetta er ótrúlega
skemmtileg íþrótt."
Þrátt fyrir skemmtilegheitin segir Guð-
mundur að fyrstu tvær túmeringar 9.
flokks í vetur hafi gengið sæmilega. „Við
erum í C-riðli og auðvitað er markmiðið
að vinna sig eitthvað upp í vetur. Til þess
er leikurinn gerður. Það mun takast ef
við æfum vel og leggjum okkur alltaf
100% fram.“
Guðmundur segist leika sem dripplari
eða „point-guard“ og kemur svo orðum
að því á íslensku; leikstjómandi! „Það
sem ég þarf helst að bæta eru skotin og
auðvitað eitthvað annað.“
Logi Gunnarsson leikmaður Njarðvík-
ur er í mestu uppáhaldi hjá honum og
Allen Iverson í NBA boltanum.
Hvað er eftirminnilegast
úr boltanum til þessa?
„I fyrra, þegar við vorum að keppa á
Reykjavíkunnótinu gegn ÍR, var brotið á
mér í 3ja stiga skoti á síðustu sekúndu.
Ég fékk þrjú víti og þurfti að hitta úr
tveimur til að jafna. Ég var einn eftir inni
á vellinum og fullt af áhorfendum og
mikil pressa á mér. Ég hitti bara úr einu
skoti og það var frekar leiðinlegt. Og
sorglegt. Sumir grétu.“
Ferðu stundum á æskustöðvar
föður þíns, til Stykkishólms?
„Já, því amma og afi eiga heima þar og
fullt af skyldfólki. Það er mjög gaman
þar.“
Hvenær var félagið
stofnað og hver gerði það?
„Það var einhver prestur sem stofnað
Val, held ég, og það er alveg að verða
100 ára.“
Valsblaðið 2001