Valsblaðið - 01.05.2001, Síða 93
Kraftaverkakonan Hrefna alsœl á heimaslóðum. Henni á hœgri hönd er Hreiðar Þórð-
arson, sem er m.a. liðsstjóri 3. flokks karla í knattspyrnu, og Sveinn Stefánsson fram-
kvœmdastjóri Vals létu sig heldur ekki vanta á hátíðina.
Gerður Guðnadóttir, sem leikur með 6.
flokki í knattspyrnu, fór létt með ferðast
um svæðið á „sex jafnfljótum“.
Ungir Valsarar leika sér í limbó í Borgarfirði.
Brceðurnir Ólafur Ægir (t.v.) og Bjarki
Már, synir Ólafs Más formanns ung-
lingaráðs knattspyrnudeildar, höfðu góða
stjórn á kassabílnum.
bak, hægt var að fara í fótbolta, köfu-
bolta, kassabílarall og það var sungið,
dansað og hlegið.
A laugardagskvöldinu var grillað og
daginn eftir var farið í ævintýragöngu-
ferð yftr grunnar ár og gengið í gegnum
stórbrotið landslag að fossum og nátt-
úrperlum. Um 100 manns mættu á fjöl-
skylduhátíðina þótt Bjarnastaðir séu í
rúmlega klukkutíma fjarlægð frá Reykja-
vík. Valsmenn láta ekki slíka smámuni
aftra sér frá því að eiga góðar stundir í
faðrni fjölskyldunnar.
Sumarið 2000 stóð Hrefna fyrir fjöl-
skylduhátíð að Hlíðarenda sem tókst í
alla staði mjög vel en hátíðin að Bjama-
stöðum var skemmtileg tilbreyting. Það
er ósk Valsmanna að Hrefna og fjöl-
skylduvænir Valsmenn sjái til þess að há-
tíðin að Bjamastöðum verði árviss við-
burður.
Hjartans þakkir Hrefna!
Reynir Vignir formaður Vals og Ragnar
Ragnarsson varformaður ásamt gamla
brýninu Þorgrími Þráinssyni sem heldur
á dóttur sinni, Kolfinnu, á snjóþotu um
hásumar! Aldurinn fer illa í suma!
Lára Kristjánsdóttir mœtti í allsérstœð-
um skóm á fjölskylduhátíðina þannig að
Þorsteinn Ólafs, eiginmaður hennar,
þuifti hálfpartinn að „aka henni" um
svœðið báða dagana. Þetta ungafólk ...
2001 Valsblaðið
91