Valsblaðið - 01.05.2001, Síða 51
eftir Þopgrím Þráinsson
.. „Allir hlæja að
prumpubrondurum!
Snillingarnir Bjarki Sig og Snorri Steinn kalla ekki allt ömmu sína þegar handbolti
og húmor eru í fyrirrúmi. Léttleikinn hefur fleytt þeim langt og á örugglega eftir að fleyta
þeim úr landi - þo ekki sem atvinnugrínurum. Draumatakmarkiö er að spila með Barcelona.
Valsmennirnir og vinirnir Markús Máni, Snorri Steinn og Bjarki Sig tilbúnir að spila
sinnfyrsta landsleik - gegn Noregi haustið 2001.
"Eg man vel eftir Gaupa þegar ég var að
spila með 6. flokki Valssegir Bjarki og
er að tala um Guðjón Guðmundsson föð-
ur Snorra Steins. „Þá var Gaupi að þjálfa
Snorra Stein og Markús Mána sem léku
með Víkingi á sínum yngstu árum. Eitt
atvik stendur upp úr í minningunni. Við
vorum að spila í litlu íþróttahúsi og
• jöldi foreldra fylgdist með. Það var jafnt
í leiknum, tíu sekúndur eftir og við með
boltann. Þegar ég fékk boltann og ætlaði
að ljúka sókninni með skoti heyrði ég
Gaupa öskra af öllum lífs og sálar kröft-
um, svo undirtók í íþróttahúsinu:
..Drep’ann strákar, drep’ann.” Og um
leið komu Snorri Steinn og Markús
Máni, að mig minnir, fljúgandi á mig.“
Snorri Steinn man líka vel eftir þessu at-
viki. „Já, pabbi hefur alltaf átt erfitt með
uð tapa, alveg sama í hverju það er. Þrátt
fyrir tiktúrur föður míns er ég sjálfur
ekki þekktur fyrir að drepa menn á leik-
velli og fæ sjaldan spjöld. Annars hefur
pabbi hjálpað mér mikið og ég væri
varla í meistaraflokki ef hans hefði ekki
notið við. Hann er heiðarlegur gagnrýn-
andi og leiðbeinandi.”
Bjarki Sigurðsson og Snorri Steinn
Guðjónsson eru í hópi efnilegustu hand-
boltamanna landsins og prímusmótoror í
Valsliðinu sem hefur leikið vel á íslands-
mótinu í vetur þrátt fyrir örlítið hikst upp
á síðkastið. Það fer ekki á milli mála að
Þeir eru einbeittir íþróttamenn, fullir
sJáIfstrausts og eldmóði og munu án efa
ná eins langt og þeir sjálfir kjósa. Bjarki
er 21 árs, ári eldri en Snorri Steinn og
báðir eru í Fjölbrautaskólanum í Ármúla,
a náttúrufræðibraut með íþróttavali (og
jarðarberjarbragði).
..Við eigum okkar stað í skólanum,“
Segir Bjarki kíminn. „Það er kallað hand-
boltahomið því þar hittum við fleiri
handboltagaura í frímínútum og þegar
við nennum ekki í tíma. En þú mátt ekki
skrifa það.“ Eins og flestum er kunnugt
er Bjarki af miklu íþróttakyni því faðir
hans er hinn eini sanni Siggi Dags, hinn
kattliðugi markvörður Vals í knattspymu
og rómaður handknattleiksmaður á sín-
um yngri árum. Allir (sem voru fæddir)
muna eftir glæsilegri frammistöðu hans
gegn Benfica 1968 þegar Valur gerði 0:0
jafntefli við stórliðið í Evrópukeppninni.
Og Ragnheiður Lámsdóttir, móðir
Bjarka, gerði garðinn frægan með meist-
araflokki í handbolta og landsliðinu á
gullaldarárum Vals. Ekki má gleyma
bræðrum Bjarka, Degi landsliðsmanni í
handknattleik sem leikur sem atvinnu-
maður í Japan og Lárusi sem var traustur
markvörður meistaraflokks í fótbolta.
Mikill húmoristi og með sjálfstraust fyrir
neðan nefið!!!
Eins og fram hefur komið er Guðjón
Guðmundsson faðir Snorra Steins en
hann þjálfaði yngri flokka Víkings eftir
að hann hætti að spila en er best þekktur
sem aðstoðarmaður Bogdans fyrrum
landsliðsþjálfara í handbolta. Og vitan-
lega sem íþróttafréttamaður (með skoð-
anir) á Stöð 2. Snorri Steinn segir móður
sína, Karen Christensen, hafa mætt á
eina handboltaæfingu um ævina. Hún
hætti á toppnum!!
Snorri Steinn skipti yfir í Val þegar
hann flutti í hlíðamar og hefur verið á
hraðri siglingu síðan. En ælli Dagur og
Lalli Sig. hafi dregið Bjarka á æfingar?
2001 Valsblaðið
49